Form

Stjórn íbúasamtaka Kjalarness


Formaður Baldur Þórarinsson xx xx
Vara formaður Guðni Ársæll Indriðason laufbrekka@kjalarnes.is 618-4234
Ritari Hildur xx xx
Gjaldkeri Olga xx xx
Meðstjórnandi xx xx xx
Varamaður xx xx xx
Varamaður xx xx xx
Varamaður xx xx xx
Varamaður xx xx xx

Samþykktir

Lög Íbúasamtaka Kjalarness


1. grein

Samtökin heita Íbúasamtök Kjalarness, sammstafað Í.K. Félagssvæði er milli Kiðafellsár og Leirvogsár innan borgarmarka Reykjavíkur.
Heimili og varnarþing samtakanna er Reykjavík

2. grein

Tilgangur samtakanna er:
Að vinna að framfara- og hagsmunamálum íbúa svæðisins.
Að stuðla að samhug og samstarfi íbúanna.
Nánari skilgreining um tilgang og markmið verði sett í Stefnumörkun er hlýtur staðfestingu aðalfundar.

3. grein

Allir íbúar Kjalarness, sem þar eiga lögheimili, teljast félagar. Kjörgengihafa allir lögskráðir íbúar Kjalarness 18 ára og eldri.

4. grein

Stjórn Í.K. fer með æsta vald í málefnum samtakanna milli aðalfunda. Stjórn Í.K. skal skipuð fimm stjórarmönnum; formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda. Kjörtímabilið er til tveggja ára. Stjórnarmenn geta verið endurkjörnir 2svar í röð. Skal kjósa tvo stjórnarmenn á jöfnu ártali en þrjá hitt árið. Varamenn skulu vera þrír og kostnir árlega. Stjórn skiptir með sér verkum.
Einnig skal á aðalfundi kjósa tvo skoðunarmenn reikninga samtakanna til eins árs.

5. grein

Formaður boðar stjórnarfundi og stýrir þeim. Skylt er að halda stjórarfund ef þrír stjórnarmenn óska þess. Ef aðalmaður getur ekki mætt skal kalla varamenn í hans stað. Stjórnarfundur er lögmætur ef þrír sjórnarmenn eru mættir, þar af formaður eða varaformaður. Stjórn skal halda gerðabók um störf sín.

6. grein

Málefnum samtakanna er stjórnað af
A) Aðalfundi
B) Stjórn félagsins.

7. grein

Aðalfund skal halda ár hvert fyrir lok mars mánaðar, og skal hann boðaður með sannarlegum hætti með 14 daga fyrirvara og telst aðalfundurinn þá löglegur. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum samtakanna. Reikningsár samtakanna er almanaksárið. Séu lagabreytingar fyrirhugaðar skal þess getið í fundarboði og jafnframt hvaða greinum laganna fyrirhugað er að breyta. Einfaldur meirihluti ræður niðurstöðu mála, nema lagabreytingar sem þurfa 2/3 hluta greiddra atkvæða.

Dagská aðalfundar:
1. formaður setur fund og tilnefnir fundarstjóra og fundarritara.
2. Formaður flytur skýrslu stjornar um störf á liðnu ári.
3. Gjaldkeri skýrir reikninga samtakanna.
4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga samtakanna.
5. Reikningar bornir undir atkvæði.
6. Lagabreytingar
7. Konsningar samkvæmt 4. grein þessara laga.
8. Önnur mál.
9. Fundarslit.

8. grein

Stjorn skal boða til almenns íbúafundar a.m.k. einu sinni á ári og ef ákveðnar óskir koma fram þar að lútandi. Fundurinn skal auglýstur og boðaður eins og um aðalfund væri að ræða.

9. grein

Stjórn er heimilt að stofna nefndir á hverjum tíma efti því sem þörf krefur. Nefndir samtakanna skulu hafa fullt samráð við stjórnina um mál er varða samtökin og heldar gerðabók um störf sín.

10. grein

Lögum þessum má aðeins beyta með 2/3 greiddra atkvæða á aðalfundi.

11. grein

Ef leggja á samtökin niður getur það einungis gerst á aðalfundi með 2/3 hluta greiddra atkvæða. Eignir samtakanna skulu þá renna til íþrótta- og æskulíðsmála á félagssvæðinu.

SAMÞYKKT með breytingum á aðalfundi 25.09.2018
(Stofnfundur félagsins var 20.02.2002)

Bláa bókin



Hér er BLÁA BÓKIN

Drög að samningi

Bæklingur BLÁA BÓKIN - minnislisti

Íbúaþing

íbúaþing á íbúaþing ofan

Undir Esjunni - 26.01.2002
Undir Esjunni, dreifbýli - 26.01.2002
Stefnumót 2030 Mitt hverfi-mín borg - 10.11.2009
Íbúaþing 2010 - 15.05.2010
Landbúnaðarstefna fyrir Kjalarnes - 16.10.2017
Þróun þjónustu á Kjalarnesi og framtíðarsýn íbúa - febrúar.2020

Skotsvæðin

........

Kláfur


Umsögn Rvk um matsskyldu - 28.08.2013
Umsögn Rvk um matsskyldu - 18.06.2014
Fyrirspurn VSÓ im matsskyldu - júlí 2014
Beiðni um umsögn frá Skipulagsstofnun til Rvk - 10.07.2014
Umsögn Rvk um matsskyldu - 05.08.2014
Umsögn Umhverfisstofnunar - 07.08.2014
Samantekt á breytingum - 05.05.2015
Svar VSO við breytingum - 05.06.2015
Umsögn ríkiseigna - 06.11.2015
Umsögn Rannsóknarstöðvar skógræktar - 14.12.2015
Fundargerð Hvefisráðs Kjalarness nr 144 - 04.07.2016
Samantekt Íbúasamtaka Kjalarness - 05.08.2016
Fréttatilkynning Íbúasamtaka Kjalarness - 08.08.2016

Efnistaka af hafsbotni

........

Umferðaröryggi

..........

Álfsnesvík

..........

Loftgæðamæling

Loftgæðamælir var settur upp við Klébergsskóla sumarið 2022

Loftgæðamælir á vefnum