Form


241
Frettamyndir/christmas-candles.jpg|left||0||bottom||

Jóla- og áramótakveðja


2007-12-24 14:03:10

{mosimage} KJALARNES.IS óskar Kjalnesingum, lesendum sínum og velunnurum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir árið sem er að líða.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

240
Frettamyndir/hlauparar_kjolur_sm2.jpg|right||0||bottom||

Þetta með lognið ......


2007-12-21 20:39:52

Örlítið hefur lognið verið að flýta sér undanfarið og björgunarsveitir haft í nógu að snúast.  Veðrið hefur nánast slagað hátt í Weapon veðrið mikla, sem hér geisaði um árið að sögn Laufbrekkubóndans. Gaman væri að hann lýsti því veðri hér á síðunni. Fleiri slíkar sögur hljóta líka að vera til á Kjalarnesinu.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

239

Íþróttamiðstöðin lokuð


2007-12-21 18:53:49
Íþróttamiðstöðin Klébergi verður lokuð næstu daga vegna lagfæringa. Ekki er alveg ljóst hvenær hún opnar aftur.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

238

Kollagrund 2


2007-12-18 12:23:17

Fyrir nokkru samþykkti borgarráð nýtt götuheiti á Kjalarnesi, Kollagrund. Skólinn fékk sent bréf þess efnis þar sem fram kemur að félagsheimilið væri númer 1 við Kollagrund, grunnskólinn nr. 2, íþróttahúsið nr. 4 og Leikskólinn Berg nr. 6. Skólpdælustöðin væri hins vegar númer 3.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

237

150 ára afmæli Brautarholtskirkju


2007-12-14 00:00:34
  Sunnudaginn 9. desember var í Fólkvangi haldið upp á 150 ára afmæli Brautarholtskirkju á Kjalarnesi. Í því tilefni var flutt vönduð menningardagskrá þar sem Skólahljómsveit Mosfellsbæjar tók á móti gestum með ljúfum tónum. Eftir helgistund í umsjón sr. Gunnars Kristjánssonar og þátttöku barnakórs Klébergsskóla kom Karlakór Kjalnesinga fram og flutti nokkra sálma sr. Matthíasar Jochumsonar. Þá var erindi Jóns Þ. Þórs um sögu kirkjunnar í flutningi Ásthildur Skjaldardóttir en hún er afkomandi kirkjusmiðs Brautarholtskirkju. Ólafur F. Magnússon forseti borgarstjórnar flutti ávarp með góðum kveðjum og fyrirheitum um stuðning. Fyrir hönd afkomenda Jóns og Auðar í Brautarholti kom Björn Jónsson kirkjuhaldari og afhenti kirkjunni veglega kertastjaka, Guðbrandur Hannesson formaður Reynivallarsóknar gaf hina nýútkomnu biblíu og Theódór Magnússon eða Teddi í Arnarholti afhenti sókninni Guðbrandsbiblíu sem er ljósprentuð útgáfa frá 1956. Því næst fluttu þeir félagar Egill Ólafsson og Jónas Þórir nokkur gullfalleg lög.  Þá var 8. bekkur Klébergsskóla með afar skemmtilegt verkefni undir leiðsögn Hrefnu Sigríðar um sögu kirkjunnar. Einnig var vegleg sögusýning sem Ólafur Engilbertsson hjá Sögumiðlun hafði unnið fyrir sóknarnefndina í tilefni afmælisins. Að lokum fluttu félagar úr lúðrasveitinni nokkur jólalög á meðan gestur nutu myndarlegra kaffiveitingar sem voru í umsjón nokkurra foreldra elstu bekkja Klébergsskóla. Hátíðin var mjög fjölmenn og þótti afskaplega velheppnuð.  

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

236

150 ára afmæli Brautarholtskirkju


2007-12-13 23:51:18
Sunnudaginn 9. desember var í Fólkvangi haldið upp á 150 ára afmæli Brautarholtskirkju á Kjalarnesi. Í því tilefni var flutt vönduð menningardagskrá þar sem Skólahljómsveit Mosfellsbæjar tók á móti gestum með ljúfum tónum. Eftir helgistund í umsjón sr. Gunnars Kristjánssonar og þátttöku barnakórs Klébergsskóla kom Karlakór Kjalnesinga fram og flutti nokkra sálma sr. Matthíasar Jochumsonar.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

PENNAR


Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vítisfjörður
2025-11-08 02:12:53

1143

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Haraldur Eiríksson skrifar
Að eitra Hval­fjörð
2025-02-03 00:00:00

1144

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Kjalarnesið á ís
2022-04-24 00:00:00

6

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Að vera, eða að vera ekki
2022-03-13 00:00:00

1080

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vegna ummæla!
2021-04-18 23:15:19

1122

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Ásgeir Harðarson skrifar
Þóri á þing.
2009-04-24 00:20:44

368

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Þórir Ingþórsson skrifar
Vaknaðu herra samgönguráðherra
2008-09-12 11:45:35

303

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Marta Guðjónsdóttir skrifar
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
2006-05-03 00:00:00

52

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

VIÐBURÐIR





ÍBÚASAMTÖK KJALARNESS

SKÓGRÆKTARFÉLAG KJALARNESS


KIRKJUR


KJALNESINGUR