150 ára afmæli BrautarholtskirkjuSunnudaginn 9. desember var í Fólkvangi haldið upp á 150 ára afmæli Brautarholtskirkju á Kjalarnesi. Í því tilefni var flutt vönduð menningardagskrá þar sem Skólahljómsveit Mosfellsbæjar tók á móti gestum með ljúfum tónum. Eftir helgistund í umsjón sr. Gunnars Kristjánssonar og þátttöku barnakórs Klébergsskóla kom Karlakór Kjalnesinga fram og flutti nokkra sálma sr. Matthíasar Jochumsonar. Þá var erindi Jóns Þ. Þórs um sögu kirkjunnar í flutningi Ásthildur Skjaldardóttir hún er afkomandi kirkjusmiðs Brautarholtskirkju. Ólafur Fr. Magnússon forseti borgarstjórnar flutti ávarp með góðum kveðjum og fyrirheitum um stuðning. Fyrir hönd afkomenda Jóns og Auðar í Brautarholti kom Björn Jónsson kirkjuhaldari og afhenti kirkjunni veglega kertastjaka og Guðbrandur Hannesson formaður Reynivallarsóknar gaf hina nýútkomnu biblíu. Þá kom Theodór í pontu og afhenti Guðbrandsbiblíu ljósprentaða útgáfu frá 19?? Að lokum fluttu þeir félagar Egill Ólafsson og Jónas Þórir nokkur gullfalleg lög. Þá var 8. bekkur Klébergsskóla með afar skemmtilegt verkefni undir leiðsögn Hrefnu Sigríðar um sögu kirkjunnar. Einnig var vegleg sögusýning sem Ólafur Engilbertsson hjá Sögumiðlun hafði unnið fyrir sóknarnefndina í tilefni afmælisins. Að lokum fluttu félagar úr lúðrasveitinni nokkur jólalög á meðan gestur nutu myndarlegra kaffiveitingar í umsjón nokkurra foreldra elstu bekkja Klébergsskóla. Hátíðin var mjög fjölmenn og þótti afskaplega velheppnuð.
|
| kerti.jpg|left||0||bottom|| images/umfklogo.jpg|right||0||bottom|| | NÝR VEFUR{mosimage} Kjalarnes.is hefur nú fengið nýtt útlit í tilefni jólamánaðarins. Undanfarið hefur farið fram heilmikil vinna vefstjóra við að koma efni af gamla vefnum inná þennan nýja. Þessari vinnu er ekki enn lokið en það helsta er komið og framhaldið verður síðan unnið á næstu mánuðum. Þá verður einnig með tilkomu þessa nýja vefumsjónarkerfis fjölgað í hópi "fréttaritara" á kjalarnes.is, úr 1 í vonandi 6 til 8. Í von um að ykkur líki breytingin, óskar KJALARNES.IS lesendum sínum gleðilegs jólaundirbúnings. |
Efnistaka af hafsbotni í Hvalfirði. |
Bíða svars um stækkun Hvalfjarðarganga„Það blasir við að það þarf að tvöfalda veginn á Kjalarnesi og tvöfalda [Hvalfjarðar]göngin miðað við þá umferðaraukningu sem orðið hefur og útlit er fyrir að verði á næstu árum,“ segir Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar. „Spurningin er sú hvernig menn vilja taka á málinu og hvort menn hafa einhvern hug á því að Spölur komi að því með einhverjum hætti eða ekki,“ bætir hann við. |
| image001.png|center||0||bottom|| image004.jpg|right||0||bottom|| | Jólatrjáasala að Fossá í Hvalfirði 2007Hefur þig dreymt um að fara með fjölskyldu þinni í skógarhögg þar sem þið veljið ykkar eigið jólatré og höggvið það sjálf? {mosimage} |
Jólatrjáasalan að Fossá í Hvalfirði |
![]() |
1143 |
![]() |
1144 |
![]() |
6 |
![]() |
1080 |
![]() |
1122 |
![]() |
368 |
![]() |
303 |
![]() |
52 |