Form


1054

Ilmolíumessa á sunnudaginn kl.11 í Brautarholtskirkju


2016-10-14 07:17:47

Ilmolíu- messa verður í Brautarholtskirkju sunnudaginn 16. október kl.11.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

1045
{"image_intro":"","float_intro":"","image_intro_alt":"","image_intro_caption":"","image_fulltext":"","float_fulltext":"","image_fulltext_alt":"","image_fulltext_caption":""}

Kjalnesingar og hælisleitendur


2016-10-09 11:21:10

Opið hús verður í Fólkvangi sunnudaginn 8. maí kl. 11 - 13. Allir Kjalnesingar og hælisleitendur sem búsettir eru í Arnarholti eru velkomnir. Markmiðið er að Kjalnesingar og hælisleitendur ræði saman og kynnist betur.·

Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.
Verið öll hjartanlega velkomin


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

1043
{"image_intro":"","float_intro":"","image_intro_alt":"","image_intro_caption":"","image_fulltext":"","float_fulltext":"","image_fulltext_alt":"","image_fulltext_caption":""}

Sorpa


2016-10-08 23:24:30

Endurvinnslustöð Sorpu á Kjalarnesi hefur verið lokað


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

1030

Íbúasamtök Kjalarness


2016-10-08 22:40:08

{tab title="Stjórn ÍK 2019" class="blue solid color_content" align="justify"}

Guðni Ársæll Indriðason - formaður- laufbrekka@kjalarnes.is - 615-6383
Lára Kristín Jóhannsdóttir - varaformaður -
larakristinjohann@gmail.com - 865-4440
Olga Ellen Þorsteinsdóttir - ritari -
olga@kjalarnes.is - 820-7736
Baldur Þór Bjarnason - gjaldkeri -
Björgvin Þór Þorsteinsson - meðstjórnandi-
helgugrund@gmail.com - 618-1742

 

Þórður Bogason - varamaður
Berglind Hönnudóttir - varamaður
Björn Jónsson - varamaður - bjorn@brautarholt.is -
Reynir Kristinsson - varamaður - reynir@norehf.is -

 

{tab title="Ýmsar skýrslur" class="orange solid color_content"}

 Samningsdrög sameiningar (1997)

 Bæklingur sameiningar

 Bláa bókin

 Undir Esjunni (I)

 Undir Esjunni (II)

 Kjalarnes - stefnumót 2030

 Íbúaþing 2010

 Landbúnaðarstefna fyrir Kjalarnes

 Þróun þjónustu á Kjalarnesi .. 2020

 

{tab title="Svifbraut" class="green solid color_content"}

 

Fréttatilkynning Í.K.

Svifbraut á Esju samantekt

Skipulagsfulltrúi Rborgar umsögn 28.8.2013

Skipulagsstofnun beiðni um umsögn frá Rborg 10.07.2014

Rborg umsögn um matsskyldu 5.8.2014

Esjuferja (VSÓ) samantekt á breytingum 5.5.2015

Esjuferja (VSÓ) svar við umsagnir 5.6.2015

Rborg umsögn matsskyldu 18.6.2015

Esjuferja (VSÓ) fyrirspurn um matsskyldu júlí 2015

Ríkiseignir beiðni um umsögn 06.11.2015

Umsögn RS. Mógilsá 14.12.2015

Umsögn Skipulagsstofnunar 07.08.2014

{tab title="Þjónustuskoðun" class="grey solid color_content"}

Erindisbréf

{tab title="Samþykktir ÍK" class="red solid color_content"}

 

LÖG ÍBÚASAMTAKA KJALARNESS

 

SAMÞYKKT Á STOFNFUNDI Í FÓLKVANGI 20.02.2002

 

1. Grein

 

Samtökin heita Íbúasamtök Kjalarness, skammstafað Í.K. Félagssvæðið nær milli Kiðafellsár og Leirvogsár innan borgarmarka Reykjavíkur.

 Heimili og varnarþing samtakanna er í Reykjavík

2. Grein

 Tilgangur samtakanna er:

 Að vinna að framfara- og hagsmunamálum íbúa svæðisins.

 Að stuðla að samhug og samstarfi íbúanna.

 Nánari skilgreining um tilgang og markmið verði sett í Stefnumörkun er hlýtur staðfestingu aðalfundar.

 

3. Grein

 Allir íbúar Kjalarness, sem þar eiga lögheimili, teljast félagar. Kjörgengi hafa allir lögskráðir íbúar Kjalarness 18 ára og eldri.

 

4. Grein

 Stjórn Í.K. fer með æðsta vald í málefnum samtakanna milli aðalfunda. Stjórn Í.K. skal skipuð fimm stjórnarmönnum; formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda. Kjörtímabilið er til tveggja ára. Stjórnarmenn geta verið endurkjörnir 2svar í röð. Skal kjósa tvo stjórnarmenn á jöfnu ártali en þrjá hitt árið. Varamenn skulu vera þrír og kosnir árlega. Stjórn skiptir með sér verkum.

 Einnig skal á aðalfundi kjósa tvo skoðunarmenn reikninga samtakanna til eins árs.

 

5. Grein

 Formaður boðar stjórnarfundi og stýrir þeim. Skylt er að halda stjórnarfund ef þrír stjórnarmenn óska þess. Ef aðalmaður getur ekki mætt skal kalla varamann í hans stað. Stjórnarfundur er lögmætur ef þrír stjórnarmenn eru mættir, þar af formaður eða varaformaður. Stjórnin skal halda gerðabók um störf sín.

 

6. Grein

 Málefnum samtakanna er stjórnað af:

a) Aðalfundi
b) Stjórn félagsins.

7. Grein

Aðalfund skal halda ár hvert í september, og skal hann boðaður bréflega með fjórtán daga fyrirvara og telst fundarboðunin þá lögleg. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum samtakanna. Reikningsár samtakanna er almanaksárið. Séu lagabreytingar fyrirhugaðar skal þess getið í fundarboði og jafnframt hvaða greinum laganna fyrirhugað er að breyta. Einfaldur meirihluti ræður niðurstöðu mála, nema lagabreytingar sem þurfa 2/3 hluta greiddra atkvæða.

Dagskrá aðalfundar:

1. Formaður setur fund og tilnefnir fundarstjóra og fundarritara.

2. Formaður flytur skýrslu stjórnar um störf á liðnu ári.

3. Gjaldkeri skýrir reikninga samtakanna og kynnir 8 mán. milliuppgjör.

4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga samtakanna.

5. Reikningar bornir undir atkvæði.

6. Lagabreytingar.

7. Kosningar samkvæmt 4. grein þessara laga.

8. Önnur mál.

9. Fundarslit.

 

8. Grein

Stjórnin skal boða til almenns íbúafundar a.m.k. einu sinni á ári og ef ákveðnar óskir koma fram þar að lútandi. Fundurinn skal auglýstur og boðaður eins og um aðalfund væri að ræða.

 

9. Grein

Stjórn er heimilt að stofna nefndir á hverjum tíma eftir því sem þörf krefur. Nefndir samtakanna skulu hafa fullt samráð við stjórnina um mál er varða samtökin og halda gerðabók um störf sín.

10. Grein

Lögum þessum má aðeins breyta með 2/3 greiddra atkvæða á aðalfundi.

 

11. Grein

Ef leggja á samtökin niður getur það einungis gerst á aðalfundi með 2/3 hluta greiddra atkvæða. Eignir samtakanna skulu þá renna til íþrótta- og æskulýðsmála á félagssvæðinu.

Ákvæði til bráðabirgða.

Vegna framkvæmdar á grein 4 á stofnfundi skal kjósa 2 aðalmenn í stjórn sem sitja til aðalfundar 2002 og 3 sem sitja til aðalfundar 2003.

SAMÞYKKT Á STOFNFUNDI 20.02.2002

 

{tab title="Stefnumörkun ÍK" class="blue solid color_content"}

 

Stefnumörkun Íbúasamtaka Kjalarness

Umferðaröryggi:

  • Koma upp að- og afreinum á Vesturlandsvegi.

  • Byggja undirgöng, við Grundarhverfi fyrir minni bíla ásamt gangandi ríðandi og hjólandi umferð, sem tengi byggðina saman.

  • Koma á framkvæmdaráætlun, að gerðar verði tengibrautir meðfram vesturlandsvegi að norðan og sunnan.

  • Girða milli Vesturlandsvegar og Vallargrundar frá Brautarholtsvegi að Klébergi.

  • Hækka og breikka umferðarstikur á Vesturlandsveginum

 

Samgöngur:

  • Krefjast þess að Sundabraut verði byggð nú þegar.

  • Fjölga strætisvagnaferðum sem henta íbúunum

  • Gera Norður-Grafarveg (Innri Kjalarnesveg) að góðum heilsárs vegi.

 

Göngustígar, reiðstígar og hjólreiðastígar:

  • Sett verði á fót nefnd hagsmunaaðila til að koma með tillögur um heildstætt skipulag fyrir göngustíga, reiðstíga og hjólreiðastíga og tengja stíganeti höfuðborgarsvæðisins. (Samstarf við nágranna sveitarfélög)

  • Leggja stíga með upplýsingakortum, s.s.um fugla, gróðu, örnefni og annan fróðleik.

 

Umhverfi og umgengni:

  • Sett verði í forgang bann við lausagöngu búfjár og Græni trefilinn.

  • Banna lausagöngu búfjár.

  • Framkvæmd við Græna trefilinn verði hrundið af stað eins fljótt og mögulegt er, og hafa milligöngu um öflun styrkja. Koma á samvinnu við skógræktarfélögin og aðra.

  • Ljúka höfuðborgargirðinu.

  • Fylgjast með skipulagsmálum og standa vörð um hagsmuni íbúa á svæðinu í þeim málum.

  • Skipuleggja uppákomu í tengslum við hreinsunardag að vori.

  • Hreinsa fjörur reglulega, hefja starfið sumarið 2002.

  • Stuðla að því að gengið verði frá útivistarsvæðum fyrir börn og fullorðna í Grundarhverfi, við Arnarhamar, við skógræktarsvæðið í Kollafirði og víðar.

  • Tryggja að fylgt sé ýtrustu kröfum um varnir gegn mengun frá allri atvinnustarfsemi og einnig urðunarsvæði í Álfsnesi.

  • Krefjast þess að atvinnustarfsemi og verklegar framkvæmdir á Kjalarnesi uppfylli ströngustu kröfur um frágang og að ekki stafi af þeim hætta.

  • Frágangur lóða og landareigna. (Bílhræ ofl.)

  • Fylgt verði eftir hugmyndum Íbúaþings um vistvæna byggð.

 

Skólar:

  • Byggja strax vistvænan leikskóla á Kjalarnesi, samkvæmt þeim hugmyndum sem fyrir liggja.

  • Ljúka við byggingu Klébergsskóla.

  • Tryggja þarf börnum 2-5 ára aðgengi að leikskóla án biðlista

  • Tryggja þarf börnum á Kjalarnesi skólagöngu við bestu aðstæður

  • Stuðla þarf að fjölbreyttu framboði af námskeiðum

 

Þjónusta:

  • Að íbúar Kjarlarness njóti sömu þjónustu og íbúar annra hverfa borgarinnar m.a.

    • Internet þjónusta, síma, sjónvarp, orkumál

  • Setja á fót félagsmiðstöð með aðstoð unglinga og áhugasamra íbúa.

  • Standa fyrir árlegri sýningu á smá- og heimilisiðnaði, listsköpun og listiðnaði á svæðinu.

  • Vekja athygli á að lóðastærð og staðsetning auðveldar íbúum á Kjalarnesi að stunda listir og smáiðnað.

  • Standa að netsíðu og útgáfu fréttabréfs með öðrum félagasamtökum á svæðinu. (Kjalarnes.is)

  • Standa að því að bjóða nýja íbúa velkomna í hverfið - kynningar

 

 

{/tabs} 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

1029

UMFK


2016-10-08 22:21:00

umfk


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

1028

Fyrsta skóflustunga að útialtari að Esjubergi á Kjalarnesi


2016-10-08 21:45:34

Sunnudaginn 8. maí kl. 14.00 verður helgistund á Esjubergi á Kjalarnesi. Tilefnið er að tekin verður fyrsta skóflustunga að útialtari þar á staðnum. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, tekur skóflustungu ásamt sr. Þórhildi Ólafs, prófasti Kjalarnessprófastsdæmis, fulltrúa sögufélagsins Steina á Kjalarnesi, formanni sóknarnefndar Brautarholtssóknar og einu fermingarbarni vorsins 2016. Helgistundinni stýrir sr. Gunnþór Þ. Ingason, prestur helgihalds og þjóðmenningar. Í lok stundarinnar verður boðið upp á kaffi og kleinur.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

PENNAR


Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vítisfjörður
2025-11-08 02:12:53

1143

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Haraldur Eiríksson skrifar
Að eitra Hval­fjörð
2025-02-03 00:00:00

1144

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Kjalarnesið á ís
2022-04-24 00:00:00

6

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Að vera, eða að vera ekki
2022-03-13 00:00:00

1080

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vegna ummæla!
2021-04-18 23:15:19

1122

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Ásgeir Harðarson skrifar
Þóri á þing.
2009-04-24 00:20:44

368

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Þórir Ingþórsson skrifar
Vaknaðu herra samgönguráðherra
2008-09-12 11:45:35

303

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Marta Guðjónsdóttir skrifar
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
2006-05-03 00:00:00

52

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

VIÐBURÐIR





ÍBÚASAMTÖK KJALARNESS

SKÓGRÆKTARFÉLAG KJALARNESS


KIRKJUR


KJALNESINGUR