Form


885

AÐALFUNDUR ÍBÚASAMTAKA KJALARNESS


2016-06-26 16:52:59

AÐALFUNDUR ÍBÚASAMTAKA KJALARNESS
Verður haldinn þriðjudagskvöldið 19. júlí 2016 í Fólkvangi kl 20:00.

Dagskrá fundarins samkvæmt samþykktum félagsins.
Íbúar á Kjalarnesi sem vilja hafa áhrif á umhverfi sitt eru hvattir til að koma og endurreisa Í.K. og taka þátt í fjölbreyttu starfi félagsins.

Stjórnin


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

884

Guðsþjósta í Brautarholtskirkju


2016-06-14 22:37:58

Guðsþjósta verður í Brautarholtskirkju föstudaginn 17. júní kl. 11:00.
Prestur verður Séra Gunnar Kristjánsson
og organisti Antoniv Hevesi.
Félagar úr Karlakór Kjalnesinga leiða söng.

Sóknarnefnd.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

856

Kjalnesingar og hælisleitendur


2016-05-07 12:28:07
Opið hús verður í Fólkvangi sunnudaginn 8. maí kl. 11 - 13. Allir Kjalnesingar og hælisleitendur sem búsettir eru í Arnarholti eru velkomnir. Markmiðið er að Kjalnesingar og hælisleitendur ræði saman og kynnist betur. 

Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.
Verið öll hjartanlega velkomin

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

883

Fyrsta skóflustunga að útialtari að Esjubergi á Kjalarnesi


2016-05-05 08:14:23
Sunnudaginn 8. maí kl. 14.00 verður helgistund á Esjubergi á Kjalarnesi. Tilefnið er að tekin verður fyrsta skóflustunga að útialtari þar á staðnum. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, tekur skóflustungu ásamt sr. Þórhildi Ólafs, prófasti Kjalarnessprófastsdæmis, fulltrúa sögufélagsins Steina á Kjalarnesi, formanni sóknarnefndar Brautarholtssóknar og einu fermingarbarni vorsins 2016. Helgistundinni stýrir sr. Gunnþór Þ. Ingason, prestur helgihalds og þjóðmenningar. Í lok stundarinnar verður boðið upp á kaffi og kleinur.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

882

ÞORRABLÓT í FÓLKVANGI


2016-02-09 13:02:51
ÞORRABLÓT UMFK verður haldið í félagsheimilinu Fólkvangi föstudaginn 19. febrúar.   
Á boðstólnum verður Þorramatur eins og við best þekkjum hann, en fyrir þá sem ekki leggja í hann

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

881

Öskudagur


2016-02-09 00:00:00

Sú ánægjulega hefð hefur skapast á Öskudaginn að þennan dag eftir skóla ganga börn um Grundahverfið, banka upp á og syngja fyrir íbúana og ekki þykir verra að fá smá gotterí að launum. Þetta er skemmtilegur siður og eru íbúar beðnir um að taka vel á móti börnunum.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

PENNAR


Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vítisfjörður
2025-11-08 02:12:53

1143

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Haraldur Eiríksson skrifar
Að eitra Hval­fjörð
2025-02-03 00:00:00

1144

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Kjalarnesið á ís
2022-04-24 00:00:00

6

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Að vera, eða að vera ekki
2022-03-13 00:00:00

1080

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vegna ummæla!
2021-04-18 23:15:19

1122

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Ásgeir Harðarson skrifar
Þóri á þing.
2009-04-24 00:20:44

368

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Þórir Ingþórsson skrifar
Vaknaðu herra samgönguráðherra
2008-09-12 11:45:35

303

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Marta Guðjónsdóttir skrifar
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
2006-05-03 00:00:00

52

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

VIÐBURÐIR





ÍBÚASAMTÖK KJALARNESS

SKÓGRÆKTARFÉLAG KJALARNESS


KIRKJUR


KJALNESINGUR