Form


756

Alþingiskosningar 27. apríl


2013-04-26 09:30:48

Við Alþingiskosningar á laugardaginn 27. apríl verður kjörstaður Kjalnesinga í Klébergsskóla og opinn frá kl. 9:00 -  22:00.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

755

Hreinsunarátak


2013-04-21 13:34:45

Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að taka þátt í fegrun borgarinnar helgina 20.-21. apríl með því að tína rusl í nágrenni sínu í svarta ruslapoka. Starfsmenn borgarinnar munu sækja pokana á Degi Jarðar, mánudaginn 22. apríl.

Átakið nefnist Einn svartur ruslapoki og er á vegum samtaka um Grænan apríl og munu nokkur önnur sveitafélög á landinu einnig  taka þátt.rusl_einn svartur poki Hægt er að sækja sér svarta ruslapoka á Olísstöðvar en Olís gefur þá í tilefni hreinsunarátaksins.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

754

Niðurstöður rafrænna kosninga


2013-04-14 10:10:33

Kjalnesingar·kusu 8 verkefni til framkvæmda á þessu ári en kostnaður við þau verður 8.9·milljónir króna. Fjöldi atkvæða á Kjalarnesi var 77 en kjörsókn þar var 12,4%·sem var besta kjörsókn í borginni í ár. Kynjaskipting á Kjalarnesi kemur einnig·á óvart en þar kusu 15,6% kvenna á móti 9,5% karla. Eftirfarandi eru niðurstöður úr kosningunum. 


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

753

Hverfakosning 2013


2013-04-11 10:59:56

Í dag 11. apríl er síðasti dagur til að kjósa um verkefni í íbúakosningunni en kerfinu verður lokað á miðnætti.

Allir íbúar í Reykjavík  sem fæddir eru 1996 eða fyrr geta kosið um framkvæmdir í hverfinu sínu en hægt er að velja á milli allt að 30 verkefna í hverju hverfi.  Kosningin fer þannig fram að hvert hverfi hefur ákveðna fjárupphæð og geta íbúar nýtt hana alla í því hverfi sem þeir kjósa.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

752

Aðalfundur Skógræktarfélags Kjalarness


2013-04-09 13:32:31

Aðalfundur Skógræktarfélags Kjalarness verður haldinn í Fólkvangi miðvikudagskvöldið 17. apríl 2013.

Venjuleg aðalfundarstörf.

Gestur fundarins verður Jón Þórir Guðmundsson garðyrkjufræðingur. Hann mun segja okkur frá ávaxtatrjárækt sinni á Akranesi.

Stjórnin.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

751

Aðalfundur Skógræktarfélags Kjalarness


2013-04-06 23:29:40

Aðalfundur Skógræktarfélags Kjalnesinga verður haldinn í Fólkvangi fimmtudaginn 18 apríl 2013 kl.: 20:00

Nánari upplýsingar síðar.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

PENNAR


Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vítisfjörður
2025-11-08 02:12:53

1143

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Haraldur Eiríksson skrifar
Að eitra Hval­fjörð
2025-02-03 00:00:00

1144

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Kjalarnesið á ís
2022-04-24 00:00:00

6

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Að vera, eða að vera ekki
2022-03-13 00:00:00

1080

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vegna ummæla!
2021-04-18 23:15:19

1122

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Ásgeir Harðarson skrifar
Þóri á þing.
2009-04-24 00:20:44

368

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Þórir Ingþórsson skrifar
Vaknaðu herra samgönguráðherra
2008-09-12 11:45:35

303

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Marta Guðjónsdóttir skrifar
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
2006-05-03 00:00:00

52

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

VIÐBURÐIR





ÍBÚASAMTÖK KJALARNESS

SKÓGRÆKTARFÉLAG KJALARNESS


KIRKJUR


KJALNESINGUR