STARFSAUGLÝSINGKjalarnesi 13.ágúst 2012. Laust starf við Klébergsskóla Laust er starf ræstitæknis við Klébergsskóla. Um er að ræða 38% starf við ræstingar á kennslurými, utan skólatíma, þrisvar sinnum í viku, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 20.ágúst 2012. Upplýsingar veitir Snorri Hauksson, aðstoðar skólastjóri, |
Kjalarnesi 13.ágúst 2012.
Laust starf við Klébergsskóla
Laust er starf ræstitæknis við Klébergsskóla. Um er að ræða 38% starf við ræstingar á kennslurými, utan skólatíma, þrisvar sinnum í viku, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 20.ágúst 2012.
Upplýsingar veitir Snorri Hauksson, aðstoðar skólastjóri,
í símum 6648271 og 5666083, Netfang: snorri.hauksson@reykjavik.is
Bæklingurinn um KlébergstorfunaÞað er ánægulegt hve góðar viðtökur bæklingur |
Það er ánægulegt hve góðar viðtökur bæklingur
Íbúasamtakanna um Klébergslaug og Fólkvang hlýtur. Margir hafa spurt hvernig hann er til kominn. Í vor stóð til að opnunartími Klébergslaugar yrði mjög skertur frá því sem var sl. sumar. Ekki var talið forsvaranlegt sakir lítillar aðsóknar að halda lauginni opinni meirihluta dagsins. UMFK beitti sér fyrir lengdum opnunartíma í sumar. Því til stuðnings vildi stjórn ÍK gera átak í kynningu á Klébergslaug og aðstöðunni á Klébergstorfunni í von um að auka aðsókn lauginni og að þessu svæði með það að markmiði að opnunartíminn yrði rýmkaður til frambúðar.
Í því tilefni voru formenn flestra félaga á Kjalarnesi ásamt skólastjóra Klébergsskóla boðaðir til fundar með yfirskriftinni "efling Klébergsins". Fundarmenn voru sammála um að gera átak til kynningar á svæðinu því öll starfsemi á Klébergstorfunni getur stutt hverja aðra. Þannig getur kynning á Klébergstorfunni sem áhugaverðum útivistarstað með aðgengi að fjörunni, mögulegum sjósundsstað, útistofunni og íþróttasvæðinu verið mikilvægur hlekkur í aukinni aðsókn að Klébergslaug. Á sama hátt getur aðgengi að Klébergslaug verið mikilvægt fyrir fjölbreytta uppbyggingu á starfsemi í Fólkvangi. Þar sem ÍK ber nú ábyrgð á rekstri Fólkvangs er það mikið hagsmunamál að kynna þá góðu aðstöðu sem þar er til fundar- og veisluhalda og var þetta kærkomið tækifæri til þess. Því þótti mikilvægt að tengja alla möguleika þessa svæðis saman og útbúa bækling sem dreift yrði til allra íbúa á Kjalarnesi og í Kjós og að með töldum sumarbústöðum í Kjós. Auk þess kemur bæklingurinn til með að liggja frammi á fjölsóttum stöðum í nágrenni okkar. Þá er leitað liðsinnis allra þeirra fjölmörgu sem láta sig rekstur Fólkvangs varða um að nota bæklinginn á vinnustöðum sínum til kynningar og hvetja fyrirtæki og starfsmannafélög til að nýta þessa aðstöðu. Við vinnslu bæklingsins var leitað til nýráðinna starfsmanna Þróunarfélags Kjalnesinga þeirra Guðna Indriðasonar og Vilhelms Wessman sem komu með drög að texta og aðstoðuðu við prófarkalestur. Páll Heimir Pálsson gerði skýringakort af Kjalarnesi. Allar myndir frágangur á texta, uppsetning, útlit og undirbúningur fyrir prentun var í höndum Kjalnesings. Bæklingurinn var prentaður í prentsmiðjunni Litróf og fyrst um sinn alfarið fjármagnaður af Íbúasamtökum Kjalarness. ÁH
FólkvangurNú stendur yfir stórátak á útliti á Fólkvangi. Eins og flestum er kunnugt var um daginn farið út í |
Nú stendur yfir stórátak á útliti á Fólkvangi. Eins og flestum er kunnugt var um daginn farið út í
Soffía Sóley í síma 662 5566 sér alfarið um skipulagningu og áður en þið komið er nauðsynlegt að hringja í hana.
Þegar eru komnir yfir 150 tímar í sjálfboðavinnu við þrif og endurbætur á Fólkvangi. Ég lít svo á að það sé okkar framlag gegn því að við fáum áfram að hafa umsjón með húsinu. Leigutekjur standa enn undir kostnaði og með útgáfu bæklingsins sem allir eiga að vera búnir að fá á að vera enn léttara að markaðssetja Fólkvang.
Vinsamlega verið einnig dugleg að fylgjast með á Fólkvangssíðunni á fésbókinni og láta heyra frá ykkur.
Golf námskeið UMFK |
Greiða þarf fyrir æfingarnar inn á reikning UMFK: 0315-26-030402 kt: 700895-2979
Við hvetjum alla til að nýta sér golfæfingasvæðið sem allra mest, því hægt er að fara hvenær sem er og það kostar ekki neitt.
Bæklingur um Fólkvang og Klébergslaug |
Golf-námskeið UMFKGolfæfingar/námskeið verður haldið á vegum UMFK þriðjudaginn 10. júlí kl. 16.00 fyrir 12 ára |
Golfæfingar/námskeið verður haldið á vegum UMFK þriðjudaginn 10. júlí kl. 16.00 fyrir 12 ára
Golfkennari er Karl Ómar Karlsson PGA golfkennari og kennir börnum og unglingum í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Þetta er frábært tækifæri að fá slíkan kennara á golfvöllinn okkar við Brautarholtsveg móts við Áhaldahúsið.
Ef vel gengur og þátttaka verður næg, verður boðið upp á framhaldstíma í vikunni á eftir sem mun reyndar kosta 1.250 á mann (niðurgreitt af UMFK), þ.e. 2 tímar, sem yrðu á sama tíma eða mánudaginn 16. júlí og þriðjudaginn 17. júlí.
Í hnotskurn: Þriðjudag 10 júlí ·FRÍTT
Æfing kl. 16:00-17:00 12 ára og yngri
Æfing kl. 17:00-18:00 13 ára og eldri
Mánudag og þriðjudag 16. og 17. júlí kr. 1,250 á einstakling
Æfing kl. 16:00-17:00 12 ára og yngri
Æfing kl. 17:00-18:00 13 ára og eldri
Golfkylfur verða á svæðinu en það má auðvitað mæta með sínar eigin.
Einnig viljum við hvetja alla til að nýta sér golfæfingasvæðið sem allra mest. Hægt er að fara hvenær sem á völlinn og það kostar ekki neitt.
Fylgist með upplýsingum á www.umfk.is.
![]() |
1143 |

![]() |
1144 |

![]() |
6 |

![]() |
1080 |

![]() |
1122 |

![]() |
368 |

{mosimage}Það er nokkuð síðan að við Kjalnesingar höfum átt frambjóðendur ofarlega á lista stjórnmálaflokka til Alþingis. Við alþingiskosningarnar n.k. laugardag er heimamanninn Þórir Ingþórsson, Esjugrund 52 í þriðja sæti á lista framsóknarmanna í okkar kjördæmi. Þórir hefur barist ötullega fyrir málefnum okkar Kjalnesinga sem varaformaður hverfisráðsins og er ekki neinn vafi á að hann sem þriðji maður á listanum geti haft veruleg áhrif á hagsmunamál okkar ef við veitum Framsóknarflokknum brautargengi.![]() |
303 |

Samgöngur til og frá höfuðborginni
Að undanförnu hafa átt sér stað talsverðar umræður um samgöngumál og umferðaröryggi. Sú umræða hefur oftar en ekki skapast í framhaldi af slysum eða umferðaróhöppum og inn í þá umræðu blandast eðlilega samgöngur til og frá Reykjavík. Það er því hryggilegt að sjá hversu litla áherslu stjórnvöld leggja á frekari samgöngubætur til og frá höfuðborginni okkar. Samtök Sveitarfélaga á Vesturlandi hafa síðastliðin ár lagt mikla áherslu á mikilvægi tvöföldunar á þjóðvegi 1 frá Holtavörðuheiði að Kollafirði. Hafa samtökin bent á mikilvægi þess að hefjast framkvæmda sem fyrst vegna þeirrar miklu aukningar á þungaflutningum á þessum slóðum síðastliðin ár. Hafa önnur samtök, þar á meðal íbúasamtökin á Kjalanesi sem og Hverfisráð Kjalarness, sent frá sér ályktanir sem snúa að þessum málum.
Slit og slysahætta
Í dag er ekkert flutningaskip sem siglir úti fyrir ströndum Íslands með viðkomu í helstu höfnum hringinn í kringum landið. Það er eðlilegt að vöruflutningar hafi færst í auknum mæli inn á þjóðvegakerfið vegna krafna um ferskleika vöru við afhendingu. Staðreyndin er hins vegar sú að þróunin hefur leitt til þess að allir flutningar fara landleiðina því ekki hefur þótt hagkvæmt að aðeins hluti vöruflutninga sé á hafi úti. Allir flutningar fara því landleiðina með þeirri miklu umferð sem því fylgir og ómældu sliti á vegakerfinu. Þessir flutningabílar eru allt að 50 tonn fullhlaðnir á meðan meðalfólksbíllinn er innan við 2 tonn. Hver maður sér hina auknu slysahættu sem af þessu hefur hlotist. Það er því löngu tímabært að kanna kosti þess að niðurgreiða strandsiglingar með opinberu fé því talsverður sparnaður hlýtur að koma á móti vegna minna slits á vegakerfi landsmanna og vegna minni slysahættu. Þetta er sú alvarlega staðreynd sem blasir við okkar í dag – flutningar á vörum og sjávarfangi fara þvers og kruss um þjóðvegi landsins, flestir með viðkomu í höfuðborginni, og aldrei kemur Sundabraut.
Hefjumst handa við tvöföldun þjóðveganna til og frá Reykjavík
Ég tel að á meðan samgönguráðherra er að velta fyrir sér legu Sundabrautar og því hvort innheimta eigi veggjald vegna þeirrar framkvæmdar þá gæti hann byrjað að gera vegina til og frá höfuðborginni sómasamlega. Hann gæti byrjað nú þegar að tvöfalda akreinar frá Borgarnesi að Reykjavík, þ.e. að þeim stað sem Sundabraut kemur upp á Kjalarnes. Vesturlandsvegur í þeirri mynd sem hann er í nú gengur ekki og þolir enga bið. Hið sama á við um Suðurlandsveg til Selfoss. Við höfum horft upp á svo mörg alvarleg slys á þessum vegaköflum undanfarin ár og alltaf þyngist umferðin.
Landsmenn eru orðnir langþreyttir á aðgerðaleysi samgönguyfirvalda og vilja skýr svör og ákvarðanir.
Því segi ég vaknaðu herra samgönguráðherra. Slysin gera ekki boð á undan sér.
Þórir Ingþórsson
Esjugrund 52
116 Kjalarnesi
![]() |
52 |

Marta Guðjónsdóttir fulltrúi sjálfstæðismanna í Hverfaráði Kjalarness skrifaði grein sem birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. mars 2006.
{mosimage}
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
Ég hef setið í hverfisráði Kjalarness á þessu kjörtímabili og fylgst þar með þeim vinnubrögðum R-listans er lúta að málefnum íbúanna. Þau vinnubrögð geta ekki fengið aðra umsögn en vítaverð vanræksla. Tekið hefur verið á brýnustu hagsmuna- og öryggismálum íbúanna með fullkomnu sinnuleysi og framtaksleysi og endalausum innantómum loforðum sem flest, ef ekki öll, hafa lent upp í erminni.
Kjalnesingar hlunnfarnir
Sú var tíðin, 1998, að fyrrverandi borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hafði uppi fjálglega frasa um gagnkvæma hagsmuni, beggja sveitarfélaganna, Reykjavíkur og Kjalarness, af sameiningunni.
En nú er öldin önnur: R-listanum hefur ekki þótt neitt sjálfsagðara en að svíkja flest loforð gagnvart Kjalnesingum og brjóta á þeim samninga, m.a. þann samning sem sveitarfélögin gerðu með sér við sameininguna. Kjalnesingar hafa svo sannarlega fengið að reyna að þeir eru olnbogabarn borgarinnar. Nú er svo komið að margir málsmetandi Kjalnesingar, telja sig og sveitunga sína hafa heldur betur verið hlunnfarna, og eru farnir að efast um réttmæti sameiningarinnar.
Öryggismál í ólestri
Kjalarnesið er beinlínis lífshættulegt íbúasvæði, börnum, unglingum og fullorðnum. Það er oft stórhættulegt ökumönnum og farþegum þeirra að hægja mikið á sér á Vesturlandsveginum og beygja síðan inn í Grundarhverfið vegna ógnarhraða og sívaxandi umferðar, sífellt stærri og fleiri vöruflutningabíla, að ekki sé nú talað um aðra og fáfarnari afleggjara Vesturlandsvegar á Kjalarnesi.
Sjálfstæðismenn í umhverfisráði lögðu fram tillögur um úrbætur í umferðaröryggismálum á Kjalarnesi 22. febrúar sl., en R-listinn frestaði tillögunni. Það er dæmigerð afstaða þeirra þegar málefni Kjalarness eru annars vegar.
Börn og unglingar á Kjalarnesi hafa reynt eftir megni að leika knattspyrnu í moldarsvaði meðfram Vesturlandsveginum þar sem umferðarþunginn er gífurlegur. Þar er ekki einu sinni rolluheld girðing og svo stutt í þjóðveginn að boltinn fer oft út á og yfir veginn. Börnin og unglingarnir hafa þolinmóð beðið eftir, einum einasta, þokkalegum sparkvelli frá því slíkum velli var lofað fyrir tveimur árum. En þar er líklega til of mikils mælst, enda bólar ekkert á vellinum.
Margsvikin loforð
Meira en helmingur vegakerfisins á Kjalarnesinu er malarvegir eins og tíðkuðust í Reykjavík áður en Geir Hallgrímsson, þáverandi borgarstjóri, útrýmdi slíkum götum og vegum á sjöunda áratug síðustu aldar. Nýbyggingin við grunnskóla hverfisins, Klébergsskóla, heldur ekki vatni og hefur ekki gert það frá því hún var tekin í notkun.
Fjögur ár, samfleytt, frestaðist skólahald við Klébergsskóla vegna seinkunar á framkvæmdum við skólann. Skólalóð Klébergsskóla er algjörlega ófrágengin, þrátt fyrir margítrekuð loforð um frágang hennar. Leikskólinn sem upphaflega og réttilega átti að verða þriggja deilda, var minnkaður niður í tveggja deilda skóla með þeim afleiðingum að hann er nú þegar orðinn of lítill. Aðkoman að honum er kennslubókardæmi í slysagildrum fyrir börn og fullorðna.
Enn hefur ekki verið lokið við gangstéttagerð og ýmsan annan frágang við götur Grundarhverfis þó nú hafi í mörg ár tíðkast í Reykjavík og öðrum bæjarfélögum að ganga frá slíkum framkvæmdaatriðum áður en íbúar flytja í hið nýja hverfi. Og svona gæti ég lengi haldið áfram. Allt er á sömu bókina lært.
Korter fyrir kosningar
Ekkert af þessu er þó aðalatriðið hér: Aðalatriðið er sjálfumgleði og hroki þeirra fulltrúa R-listans sem fimmtudaginn 23. mars sl. létu loks draga sig upp á Kjalarnes á kosningafund, korter fyrir kosningar, hlusta þar á umkvartanir íbúanna, - en tóku síðan til máls og töluðu fjálglega um sínar fallegu framtíðarhugsjónir, en létu umkvartanirnar íbúanna sem vind um eyru þjóta.
Slík framkoma sýnir fádæma valdhroka og er því frágangssök.
Það er athyglisvert, að mörg - jafnvel flest - þeirra úrlausnarefna sem hér koma til álita, kosta borgina óverulegar fjárhæðir miðað við öryggishagsmuni Kjalnesinga. Spurningin snýst því ekki um fjármuni, heldur áhuga á velferð borgaranna og að staðið sé við gerða samninga.
Við sjálfstæðismenn teljum það sjálfsagða skyldu okkar að standa við samninga og gefin loforð. Við viljum láta verkin tala, teljum það skyldu okkar að hlusta á íbúa borgarinnar, forgangsraða verkefnum og framkvæma án tafar það sem er aðkallandi.og varðar öryggi borgarbúa. Við munum því standa við þau fyrirheit á Kjalarnesinu sem R-listinn hefur svikið.
Greinin birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. mars 2006.



