Hvatt til aukinnar flokkunar á KjalarnesiBorgarráð samþykkti þann 5. júlí tillögu umhverfis- og samgönguráðs um stóraukna flokkun og hirðingu pappírsefna og skildaskyldra umbúða. Frá og með 1. október mun |
Borgarráð samþykkti þann 5. júlí tillögu umhverfis- og samgönguráðs um stóraukna flokkun og hirðingu pappírsefna og skildaskyldra umbúða. Frá og með 1. október mun
ekki verða leyft að setja pappírsefni og skilaskyldar umbúðir með í ílát fyrir almennt heimilissorp.
Mikil hugarfarsbreyting hefur orðið hjá þjóðinni varðandi flokkun endurvinnsluefna frá almennu heimilissorpi á undanförnum árum. Mikil verðmæti liggja í endurvinnsluefnum sem hægt er að hirða úr sorpinu. Þá sparar flokkun á endurvinnsluefnum sveitarfélögum stórfé í urðunarkostnaði. Aukin flokkun mun því að öllum líkindum lækka sorphirðugjöld heimila.
Í haust mun Reykjavíkurborg stórefla almenna flokkun á pappírs
efnum frá heimilissorpi líkt og hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu Pappír er verðmætt endurvinnsluefni og með því að flokka hann frá almennu heimilissorpi sparar Reykjavíkurborg um 43 milljónir í móttökugjöldum vegna urðunar á blönduðu sorpi.
Íbúar eru ennfremur hvattir til að setja málma, t.a.m. niðursuðudósir, álpappír og annan málm er til fellur á heimilum lausan í tunnu fyrir almennt heimilissorp. Sorpa hefur náð frábærum árangri í að flokka málma frá blönduðu sorpi með vélum. Enn betri árangur næst ef íbúar setja málminn lausan í tunnuna en ekki í poka.
Aðalbreytingin á sorphirðu í Reykjavík felst í því að ekki má lengur að setja pappír og umbúðir með skilagjaldi í almennt heimilissorp.
Íbúar kannast vel við slíkt fyrirkomulag því ekki hefur verið leyfilegt að setja garðaúrgang, grófan úrgang, rafhlöður og önnur spilliefni í tunnur fyrir almennt heimilissorp í áratugi og hefur sorphirðan fylgst með því að farið sé eftir þeim reglum. Nú bætast pappírsefnin og skilagjaldsumbúðir einfaldlega við.
Íbúar munu fá góðlátlegar viðvaranir í fyrstu fjögur skiptin ef pappírsefni eða skilagjaldsumbúðir eru ekki flokkaðar frá en síðan kemur óhjákvæmilega að því að tunnan verður skilin eftir óhirt rétt eins og verið hefur varðandi önnur efni sem ekki mega fara í heimilissorpið. Verður þá að greiða sérstaklega fyrir aukaferð til losunar.
Á meðan breytingarnar ganga yfir munu íbúar fá nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig staðið skuli að flokkun pappírs frá almennu heimilissorpi og eru Reykvíkingar hvattir til þess að kynna sér þær vel.
Í Reykjavík standa íbúum til boða þrjár leiðir varðandi flokkun og endurvinnslu.
1. BLÁA TUNNAN FRÁ REYKJAVÍKUBORG Í bláu tunnuna má setja allan pappír og pappa. Hún er losuð á 20 daga fresti og í hana má allur pappír og pappi fara óflokkaður, s.s. dagblöð, umbúða pappi, bylgjupappi og fernur. Fjölmargir íbúar í Reykjavík hafa nú þegar stigið skrefið og fengið sér bláu tunnuna. Heimili sem fær sér bláu tunnuna getur minnkað umfang almenns heimilissorps um 25 – 30%. Það þýðir að heimili geta minnkað sorphirðukostnað sinn umtalsvert með því að panta losun á almennu heimilissorpi á 20 daga fresti í stað 10 daga frests eða fækkað ílátum fyrir almennt sorp í fjölbýli.
2. ENDURVINNSLUTUNNA FRÁ EINKAFYRIRTÆKI Gámaþjónustan og Íslenska gámafélagið bjóða upp á endurvinnsluílát sem hægt er að setja í öll pappírsefni auk annarra endurvinnsluefna.
3. FLOKKA OG SKILA SJÁLFUR Áfram verður hægt að fara sjálfur með endurvinnsluefnin á endurvinnslustöðvar Sorpu eða í grenndargáma. Reykjavíkurborg hyggst fjölga grenndarstöðvum fyrir endurvinnsluefni upp í 75 en þær eru 55 í dag. Einnig verða gámarnir losaðir oftar. Margir kjósa nú þegar að flokka og skila sjálfir á grenndarstöðvar eða til Sorpu og halda þannig sorphirðugjöldum sínum lægri.
Innleiðing breytinganna mun eiga sér stað í einu hverfi í einu og verður byrjað á Kjalarnesi 1. október næstkomandi og í hinum hverfunum í Reykjavík í kjölfarið. Er reiknað með að breytingarnar verði að fullu komnar til framkvæmda í öllum hverfum borgarinnar í apríl 2013.
Reykjavíkurborg hvetur alla íbúa í Reykjavík til að hefja flokkun strax. Hættum að henda verðmætum í ruslið, verum umhverfisvæn og nýtum þau.
Þú getur pantað bláu tunnuna hjá Sorphirðu Reykjavíkur í síma 411 1111 eða með því að senda tölvupóst á sorphirda@reykjavik.is Nánari upplýsingar veita Karl Sigurðsson, formaður umhverfis- og samgönguráðs í síma 660 6512 og Guðmundur B. Friðriksson hjá umhverfis- og samgöngusviði í síma 693 9600
Byggt á fréttatilkynningu frá upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar
Hér er einnig fréttaumfjöllun um þetta mál.
Bæklingurinn - Hverfið mittHverfið mitt - My Neighbourhood - Moje Sąsiedztwo - Mano kaimynystëje |
Hverfið mitt - My Neighbourhood - Moje Sąsiedztwo - Mano kaimynystëje
Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness sendir nú aftur frá sér bæklinginn Hverfið mitt. Bæklingurinn er nú gefinn út á 4 tungumálum, íslensku, ensku, pólsku og litháísku.
félagasamtökum. Má þar t.d. nefna þá þjónustu sem Miðgarður veitir sem og upplýsingar um hverfislögreglu, heilsugæslu, íbúasamtök, frístundaheimili, tónlistarskóla, sundlaugar, íþróttafélög og ýmislegt fleira.Bæklingurinn er sendur til þeirra sem flytja í Grafarvog og á Kjalarnes. Með þessu viljum við bjóða nýja íbúa velkomna í hverfið auk þess sem upplýsingabæklingurinn auðveldar þeim að átta sig á þeirri þjónustu sem í boði er í hverfunum. Bæklinginn er einnig hægt að nálgast hér á heimasíðu Miðgarðs á vefsíðunni www.midgardur.is.
Með kærri kveðju,
starfsfólk Miðgarðs
Kjalnesingur er kominn út |
Guðsþjónusta 17. júníÞjóðhátíðardagurinn 17. júní. |
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní.
Guðsþjónusta í Brautarholtskirkju sunnudaginn 17. júní kl. 11:00. Prestur er sr. Gunnar Kristjánsson. Félagar úr
Karlakór Kjalnesinga leiða söng. Organisti er Páll Helgason.
Brautarholtskirkja á Kjalarnesi má teljast afkomandifyrstu kirkju á Íslandi, þeirrar kirkju sem suðureyski landnámsmaðurinn Örlykur Hrappsson reisti á Esjubergi skömmu fyrir árið 900 og frá segir í Landnámu og víðar.· Kirkjan, sem þar er nú, var reist árið 1857 af Eyjólfi Þorvarðarsyni frá Bakka á Kjalarnesi. Áratug eftir vígslu kirkjunnar kom þjóðskáldið séra Matthías Jochumsson til þjónustu í kirkjunni (1867-73)Hreinsunardagar á Kjalarnesi |

Mótórhjólamenn á KjalarnesiÞað væri gaman að vita hve margir Kjalnesingar eru mótorhjólamenn. |
Það væri gaman að vita hve margir Kjalnesingar eru mótorhjólamenn.
Kveðja, Þór
s: 8203227
![]() |
1143 |

![]() |
1144 |

![]() |
6 |

![]() |
1080 |

![]() |
1122 |

![]() |
368 |

{mosimage}Það er nokkuð síðan að við Kjalnesingar höfum átt frambjóðendur ofarlega á lista stjórnmálaflokka til Alþingis. Við alþingiskosningarnar n.k. laugardag er heimamanninn Þórir Ingþórsson, Esjugrund 52 í þriðja sæti á lista framsóknarmanna í okkar kjördæmi. Þórir hefur barist ötullega fyrir málefnum okkar Kjalnesinga sem varaformaður hverfisráðsins og er ekki neinn vafi á að hann sem þriðji maður á listanum geti haft veruleg áhrif á hagsmunamál okkar ef við veitum Framsóknarflokknum brautargengi.![]() |
303 |

Samgöngur til og frá höfuðborginni
Að undanförnu hafa átt sér stað talsverðar umræður um samgöngumál og umferðaröryggi. Sú umræða hefur oftar en ekki skapast í framhaldi af slysum eða umferðaróhöppum og inn í þá umræðu blandast eðlilega samgöngur til og frá Reykjavík. Það er því hryggilegt að sjá hversu litla áherslu stjórnvöld leggja á frekari samgöngubætur til og frá höfuðborginni okkar. Samtök Sveitarfélaga á Vesturlandi hafa síðastliðin ár lagt mikla áherslu á mikilvægi tvöföldunar á þjóðvegi 1 frá Holtavörðuheiði að Kollafirði. Hafa samtökin bent á mikilvægi þess að hefjast framkvæmda sem fyrst vegna þeirrar miklu aukningar á þungaflutningum á þessum slóðum síðastliðin ár. Hafa önnur samtök, þar á meðal íbúasamtökin á Kjalanesi sem og Hverfisráð Kjalarness, sent frá sér ályktanir sem snúa að þessum málum.
Slit og slysahætta
Í dag er ekkert flutningaskip sem siglir úti fyrir ströndum Íslands með viðkomu í helstu höfnum hringinn í kringum landið. Það er eðlilegt að vöruflutningar hafi færst í auknum mæli inn á þjóðvegakerfið vegna krafna um ferskleika vöru við afhendingu. Staðreyndin er hins vegar sú að þróunin hefur leitt til þess að allir flutningar fara landleiðina því ekki hefur þótt hagkvæmt að aðeins hluti vöruflutninga sé á hafi úti. Allir flutningar fara því landleiðina með þeirri miklu umferð sem því fylgir og ómældu sliti á vegakerfinu. Þessir flutningabílar eru allt að 50 tonn fullhlaðnir á meðan meðalfólksbíllinn er innan við 2 tonn. Hver maður sér hina auknu slysahættu sem af þessu hefur hlotist. Það er því löngu tímabært að kanna kosti þess að niðurgreiða strandsiglingar með opinberu fé því talsverður sparnaður hlýtur að koma á móti vegna minna slits á vegakerfi landsmanna og vegna minni slysahættu. Þetta er sú alvarlega staðreynd sem blasir við okkar í dag – flutningar á vörum og sjávarfangi fara þvers og kruss um þjóðvegi landsins, flestir með viðkomu í höfuðborginni, og aldrei kemur Sundabraut.
Hefjumst handa við tvöföldun þjóðveganna til og frá Reykjavík
Ég tel að á meðan samgönguráðherra er að velta fyrir sér legu Sundabrautar og því hvort innheimta eigi veggjald vegna þeirrar framkvæmdar þá gæti hann byrjað að gera vegina til og frá höfuðborginni sómasamlega. Hann gæti byrjað nú þegar að tvöfalda akreinar frá Borgarnesi að Reykjavík, þ.e. að þeim stað sem Sundabraut kemur upp á Kjalarnes. Vesturlandsvegur í þeirri mynd sem hann er í nú gengur ekki og þolir enga bið. Hið sama á við um Suðurlandsveg til Selfoss. Við höfum horft upp á svo mörg alvarleg slys á þessum vegaköflum undanfarin ár og alltaf þyngist umferðin.
Landsmenn eru orðnir langþreyttir á aðgerðaleysi samgönguyfirvalda og vilja skýr svör og ákvarðanir.
Því segi ég vaknaðu herra samgönguráðherra. Slysin gera ekki boð á undan sér.
Þórir Ingþórsson
Esjugrund 52
116 Kjalarnesi
![]() |
52 |

Marta Guðjónsdóttir fulltrúi sjálfstæðismanna í Hverfaráði Kjalarness skrifaði grein sem birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. mars 2006.
{mosimage}
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
Ég hef setið í hverfisráði Kjalarness á þessu kjörtímabili og fylgst þar með þeim vinnubrögðum R-listans er lúta að málefnum íbúanna. Þau vinnubrögð geta ekki fengið aðra umsögn en vítaverð vanræksla. Tekið hefur verið á brýnustu hagsmuna- og öryggismálum íbúanna með fullkomnu sinnuleysi og framtaksleysi og endalausum innantómum loforðum sem flest, ef ekki öll, hafa lent upp í erminni.
Kjalnesingar hlunnfarnir
Sú var tíðin, 1998, að fyrrverandi borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hafði uppi fjálglega frasa um gagnkvæma hagsmuni, beggja sveitarfélaganna, Reykjavíkur og Kjalarness, af sameiningunni.
En nú er öldin önnur: R-listanum hefur ekki þótt neitt sjálfsagðara en að svíkja flest loforð gagnvart Kjalnesingum og brjóta á þeim samninga, m.a. þann samning sem sveitarfélögin gerðu með sér við sameininguna. Kjalnesingar hafa svo sannarlega fengið að reyna að þeir eru olnbogabarn borgarinnar. Nú er svo komið að margir málsmetandi Kjalnesingar, telja sig og sveitunga sína hafa heldur betur verið hlunnfarna, og eru farnir að efast um réttmæti sameiningarinnar.
Öryggismál í ólestri
Kjalarnesið er beinlínis lífshættulegt íbúasvæði, börnum, unglingum og fullorðnum. Það er oft stórhættulegt ökumönnum og farþegum þeirra að hægja mikið á sér á Vesturlandsveginum og beygja síðan inn í Grundarhverfið vegna ógnarhraða og sívaxandi umferðar, sífellt stærri og fleiri vöruflutningabíla, að ekki sé nú talað um aðra og fáfarnari afleggjara Vesturlandsvegar á Kjalarnesi.
Sjálfstæðismenn í umhverfisráði lögðu fram tillögur um úrbætur í umferðaröryggismálum á Kjalarnesi 22. febrúar sl., en R-listinn frestaði tillögunni. Það er dæmigerð afstaða þeirra þegar málefni Kjalarness eru annars vegar.
Börn og unglingar á Kjalarnesi hafa reynt eftir megni að leika knattspyrnu í moldarsvaði meðfram Vesturlandsveginum þar sem umferðarþunginn er gífurlegur. Þar er ekki einu sinni rolluheld girðing og svo stutt í þjóðveginn að boltinn fer oft út á og yfir veginn. Börnin og unglingarnir hafa þolinmóð beðið eftir, einum einasta, þokkalegum sparkvelli frá því slíkum velli var lofað fyrir tveimur árum. En þar er líklega til of mikils mælst, enda bólar ekkert á vellinum.
Margsvikin loforð
Meira en helmingur vegakerfisins á Kjalarnesinu er malarvegir eins og tíðkuðust í Reykjavík áður en Geir Hallgrímsson, þáverandi borgarstjóri, útrýmdi slíkum götum og vegum á sjöunda áratug síðustu aldar. Nýbyggingin við grunnskóla hverfisins, Klébergsskóla, heldur ekki vatni og hefur ekki gert það frá því hún var tekin í notkun.
Fjögur ár, samfleytt, frestaðist skólahald við Klébergsskóla vegna seinkunar á framkvæmdum við skólann. Skólalóð Klébergsskóla er algjörlega ófrágengin, þrátt fyrir margítrekuð loforð um frágang hennar. Leikskólinn sem upphaflega og réttilega átti að verða þriggja deilda, var minnkaður niður í tveggja deilda skóla með þeim afleiðingum að hann er nú þegar orðinn of lítill. Aðkoman að honum er kennslubókardæmi í slysagildrum fyrir börn og fullorðna.
Enn hefur ekki verið lokið við gangstéttagerð og ýmsan annan frágang við götur Grundarhverfis þó nú hafi í mörg ár tíðkast í Reykjavík og öðrum bæjarfélögum að ganga frá slíkum framkvæmdaatriðum áður en íbúar flytja í hið nýja hverfi. Og svona gæti ég lengi haldið áfram. Allt er á sömu bókina lært.
Korter fyrir kosningar
Ekkert af þessu er þó aðalatriðið hér: Aðalatriðið er sjálfumgleði og hroki þeirra fulltrúa R-listans sem fimmtudaginn 23. mars sl. létu loks draga sig upp á Kjalarnes á kosningafund, korter fyrir kosningar, hlusta þar á umkvartanir íbúanna, - en tóku síðan til máls og töluðu fjálglega um sínar fallegu framtíðarhugsjónir, en létu umkvartanirnar íbúanna sem vind um eyru þjóta.
Slík framkoma sýnir fádæma valdhroka og er því frágangssök.
Það er athyglisvert, að mörg - jafnvel flest - þeirra úrlausnarefna sem hér koma til álita, kosta borgina óverulegar fjárhæðir miðað við öryggishagsmuni Kjalnesinga. Spurningin snýst því ekki um fjármuni, heldur áhuga á velferð borgaranna og að staðið sé við gerða samninga.
Við sjálfstæðismenn teljum það sjálfsagða skyldu okkar að standa við samninga og gefin loforð. Við viljum láta verkin tala, teljum það skyldu okkar að hlusta á íbúa borgarinnar, forgangsraða verkefnum og framkvæma án tafar það sem er aðkallandi.og varðar öryggi borgarbúa. Við munum því standa við þau fyrirheit á Kjalarnesinu sem R-listinn hefur svikið.
Greinin birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. mars 2006.



