Kjósverjar hafna háspennulínu í HvalfirðiHreppsnefnd Kjósarhrepps segist vera alfarið á móti aukinni mengandi iðnaðaruppbyggingu í Hvalfirði |
Hreppsnefnd Kjósarhrepps segist vera alfarið á móti aukinni mengandi iðnaðaruppbyggingu í Hvalfirði
og telur að iðnaðarstarfsemin á Grundartanga hafi þegar valdið íbúum og fasteignaeigendum í Kjósarhreppi ómældu tjóni. Hreppsnefndin hefur því hafnað hugmyndum Landnets hf. um að leggja nýja raforkulínu gegnum hreppinn.
Nánar um málið á mbl.is og á kjos.is
1. tbl Kjalnesings 2012
|
1. tölublað Kjalnesings 2012 er komið út.
Aðalfundur Íbúasamtaka Kjalarness![]() |

Styrkur til frístundastarfsHverfisráð Kjalarness auglýsir eftir styrkumsóknum í miljón króna pott sem hverfisráðið hefur til ráðstöfunar undir heitinu ódýrari frístundir. |
Hverfaverkefni – KjalarnesÁ vefnum Betri Reykjavík geta Kjalnesingar eins og aðrir borgarbúar forgangsraðað fjármunum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012. Fram til 23. janúar geta íbúar sett inn hugmyndir |
Á vefnum Betri Reykjavík geta Kjalnesingar eins og aðrir borgarbúar forgangsraðað fjármunum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012. Fram til 23. janúar geta íbúar sett inn hugmyndir
Eftir 23. janúar verða efstu hugmyndir teknar af vefnum og metnar af fagsviðum borgarinnar. Ef framkvæmd þeirra heyrir undir verkahring Reykjavíkurborgar verða þær kostnaðarmetnar en síðan munu hverfaráðin stilla upp verkefnum sem íbúum gefst kostur á að kjósa um með rafrænum hætti, frá 8. – 13. mars 2012. Upplýsingar um hvernig þessu fjármagni er skipt á milli hverfanna má finna hér. Hafa verður í huga að ekki er verið að kjósa um allar verklegar framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar. Mun meira verður framkvæmt í hverfunum á næsta ári. Kjalnesingar eru hvattir til að kynna sér vefinn og taka virkan þátt í því að koma með og velja raunhæfar hugmyndir til að gera borgina enn betri fyrir alla íbúa hennar.
Þeir sem áhuga hafa á að setja inn hugmynd að hverfaverkefni og gefa hugmyndum annarra vægi sitt verða að vera skráðir notendur á Betri Reykjavík (innskráning fer fram hér). Síðan er hverfið valið og þar er þá hægt að skoða allar þær hugmyndir sem nú þegar er komnar fyrir viðkomandi hverfi, svo og er hægt að gefa þeim vægi sitt nú eða setja inn nýja hugmynd.
Á vefnum Betri Reykjavík er lýsing á hvað fellur undir nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni. Nánari upplýsingar er að finna á www.betrireykjavik.is.·
Kjalnesingar eru hvattir til að fara inn á vefinn fyrir 23. janúar og koma á framfæri hugmyndum að smærri viðhaldsverkefnum eða nýframkvæmdum og taka þannig virkan þátt í ákvarðanatöku varðandi umhverfi sitt. Bestu hugmyndirnar koma síðan til framkvæmdar á þessu ári.
Íbúafundurinn um landsáætluninaÁ fróðlegum fundi vegna landsáætlunar um úrgang kættust fundargestir mjög þegar frummælandi tók undir gagnrýni vegna lokunar endurvinnslustöðvar Sorpu. |
Á fróðlegum fundi vegna landsáætlunar um úrgang kættust fundargestir mjög þegar frummælandi tók undir gagnrýni vegna lokunar endurvinnslustöðvar Sorpu.
Fundurinn var haldinn í Fólkvangi þar sem Kjartan Ingvarsson lögfræðingur hjá Umhverfisráðuneytinu kynnti áætlunina.
Landsáætlunin er stefnumörkun til framtíðar í úrgangsmálum. Í fyrsta lagi á áætlunin á að innihalda samantekt um stöðuna í dag. Þá verður stefna stjórnvalda mótuð. Hvernig ætlum við að draga úr myndun úrgangs og hvernig ætlum við að auka flokkun úrgangs? Í þriðja lagi verða sett markmið varðandi söfnun og endurvinnslu.
Í framhaldi af kynningu Kjartans sköpuðust góðar umræður. Spurt var hvaða skynsemi væri í að lengja leiðir til að losa sig við úrgang. Hörð gagnrýni kom fram á lokun endurvinnslustöðvar Sorpu á Kjalarnesi og viljaleysi Sorpu og borgarinnar til að ræða ýtarlegar tillögur íbúanna. Fram kom sú skoðun að þátttaka í endurvinnslu hefði að undanförnu hrakað verulega á Kjalarnesi. Sú stefna sem borgin hefði samþykkt við sameiningu um vistvænt Kjalarnes hefði ekki gengið eftir. Bent var á að umhverfisátakið „vistvænt í verki“ sem var á Kjalarnesi fyrir meira en 15 árum hefði skilað miklu en nú vantar mikið upp á að því hefði verið fylgt eftir.
Með meiri nálægð og betra aðgengi að endurvinnslustöðum er mikið líklegra að ná árangri í flokkun. Rætt var um ýmiss útfærsluatriði við flokkunarílát, grendargáma og endurvinnslustöðvar. Bent var á að það sé öfugsnúið að flytja garðúrgang langar leiðir í burtu af Kjalarnesi með tilheyrandi kostnaði í stað þess að nýta hann hér á staðnum t.d. til jarðgerðar. Skynsamlegast sé að nýta lífrænan úrgang sem næst uppruna sínum. Þá var bent á að grendargámar á Kjalarnesi væru aðeins tveir það þyrfti einnig að vera hægt að losna við áldósir og gler. Gámarnir eru oft fullir þegar komið er með úrgang og bagalegt sé að þegar rigni standi þeir alltaf í djúpum polli. Allt þetta sé afar neikvætt sé ætlunin að hvetja íbúa til aukinnar flokkunar.
Hvar er fræðsla og áróður um hagstæðari innkaup m.t.t. verndar náttúrunnar? Í dag eru engar skyldur til staðar um kynningu á úrvinnslu hráefna. Hvað á t.d. að gera við sparperur? Hvert á ónýta brauðristin að fara? Hvað verður um þá hluti sem við förum með til endurvinnslu? Hvaða kröfu á að gera til þjónustu á endurvinnslustöðvum? Bent var á að umhverfisáætlun þurfi að vera hluti af menntastefnu í grunnskóla.
Kjartan segir að til staðar þurfi að vera hagrænir hvatar til að hamla urðun. Segir að urðun sé mjög ódýr á Íslandi miðað við nágrannalönd okkar. Hugsanlegt er að banna urðun lífræns úrgangs í náinni framtíð en hjá ESB er til skoðunar að banna slíka urðun eftir 10 – 15 ár. Segir Kjartan að megin reglan verði sú að fólk geti skilað gjaldfrjálst. Þá er fólk líklegra til að nýta endurvinnslu ef lausnin er í tunnum bakvið hús fremur en að fara að keyra langar leiðir í endurvinnslustöðvar.
Umhverfisráðuneytið óskar eftir ábendingum frá íbúum til að nýta inn í vinnuna við þessa áætlun. Þessar ábendingar geta verið um hvaðeina sem varðar þann úrgang sem við erum með allt frá fyrirkomulagi að ílátum fyrir flokkun á heimilum, aðgengi að endurvinnslugámum eða stöðvum eða úrvinnslu úrgangs. Ekki er nauðsynlegt að koma með mótaðar hugmyndir heldur eru almennar ábendingar einnig vel þegnar og óskast sendar á: postur@umhverfisraduneyti.is.
Hér má nálgast kynningu Kjartans og Hér er tengill á Umhverfisráðuneytið.
![]() |
1143 |

![]() |
1144 |

![]() |
6 |

![]() |
1080 |

![]() |
1122 |

![]() |
368 |

{mosimage}Það er nokkuð síðan að við Kjalnesingar höfum átt frambjóðendur ofarlega á lista stjórnmálaflokka til Alþingis. Við alþingiskosningarnar n.k. laugardag er heimamanninn Þórir Ingþórsson, Esjugrund 52 í þriðja sæti á lista framsóknarmanna í okkar kjördæmi. Þórir hefur barist ötullega fyrir málefnum okkar Kjalnesinga sem varaformaður hverfisráðsins og er ekki neinn vafi á að hann sem þriðji maður á listanum geti haft veruleg áhrif á hagsmunamál okkar ef við veitum Framsóknarflokknum brautargengi.![]() |
303 |

Samgöngur til og frá höfuðborginni
Að undanförnu hafa átt sér stað talsverðar umræður um samgöngumál og umferðaröryggi. Sú umræða hefur oftar en ekki skapast í framhaldi af slysum eða umferðaróhöppum og inn í þá umræðu blandast eðlilega samgöngur til og frá Reykjavík. Það er því hryggilegt að sjá hversu litla áherslu stjórnvöld leggja á frekari samgöngubætur til og frá höfuðborginni okkar. Samtök Sveitarfélaga á Vesturlandi hafa síðastliðin ár lagt mikla áherslu á mikilvægi tvöföldunar á þjóðvegi 1 frá Holtavörðuheiði að Kollafirði. Hafa samtökin bent á mikilvægi þess að hefjast framkvæmda sem fyrst vegna þeirrar miklu aukningar á þungaflutningum á þessum slóðum síðastliðin ár. Hafa önnur samtök, þar á meðal íbúasamtökin á Kjalanesi sem og Hverfisráð Kjalarness, sent frá sér ályktanir sem snúa að þessum málum.
Slit og slysahætta
Í dag er ekkert flutningaskip sem siglir úti fyrir ströndum Íslands með viðkomu í helstu höfnum hringinn í kringum landið. Það er eðlilegt að vöruflutningar hafi færst í auknum mæli inn á þjóðvegakerfið vegna krafna um ferskleika vöru við afhendingu. Staðreyndin er hins vegar sú að þróunin hefur leitt til þess að allir flutningar fara landleiðina því ekki hefur þótt hagkvæmt að aðeins hluti vöruflutninga sé á hafi úti. Allir flutningar fara því landleiðina með þeirri miklu umferð sem því fylgir og ómældu sliti á vegakerfinu. Þessir flutningabílar eru allt að 50 tonn fullhlaðnir á meðan meðalfólksbíllinn er innan við 2 tonn. Hver maður sér hina auknu slysahættu sem af þessu hefur hlotist. Það er því löngu tímabært að kanna kosti þess að niðurgreiða strandsiglingar með opinberu fé því talsverður sparnaður hlýtur að koma á móti vegna minna slits á vegakerfi landsmanna og vegna minni slysahættu. Þetta er sú alvarlega staðreynd sem blasir við okkar í dag – flutningar á vörum og sjávarfangi fara þvers og kruss um þjóðvegi landsins, flestir með viðkomu í höfuðborginni, og aldrei kemur Sundabraut.
Hefjumst handa við tvöföldun þjóðveganna til og frá Reykjavík
Ég tel að á meðan samgönguráðherra er að velta fyrir sér legu Sundabrautar og því hvort innheimta eigi veggjald vegna þeirrar framkvæmdar þá gæti hann byrjað að gera vegina til og frá höfuðborginni sómasamlega. Hann gæti byrjað nú þegar að tvöfalda akreinar frá Borgarnesi að Reykjavík, þ.e. að þeim stað sem Sundabraut kemur upp á Kjalarnes. Vesturlandsvegur í þeirri mynd sem hann er í nú gengur ekki og þolir enga bið. Hið sama á við um Suðurlandsveg til Selfoss. Við höfum horft upp á svo mörg alvarleg slys á þessum vegaköflum undanfarin ár og alltaf þyngist umferðin.
Landsmenn eru orðnir langþreyttir á aðgerðaleysi samgönguyfirvalda og vilja skýr svör og ákvarðanir.
Því segi ég vaknaðu herra samgönguráðherra. Slysin gera ekki boð á undan sér.
Þórir Ingþórsson
Esjugrund 52
116 Kjalarnesi
![]() |
52 |

Marta Guðjónsdóttir fulltrúi sjálfstæðismanna í Hverfaráði Kjalarness skrifaði grein sem birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. mars 2006.
{mosimage}
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
Ég hef setið í hverfisráði Kjalarness á þessu kjörtímabili og fylgst þar með þeim vinnubrögðum R-listans er lúta að málefnum íbúanna. Þau vinnubrögð geta ekki fengið aðra umsögn en vítaverð vanræksla. Tekið hefur verið á brýnustu hagsmuna- og öryggismálum íbúanna með fullkomnu sinnuleysi og framtaksleysi og endalausum innantómum loforðum sem flest, ef ekki öll, hafa lent upp í erminni.
Kjalnesingar hlunnfarnir
Sú var tíðin, 1998, að fyrrverandi borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hafði uppi fjálglega frasa um gagnkvæma hagsmuni, beggja sveitarfélaganna, Reykjavíkur og Kjalarness, af sameiningunni.
En nú er öldin önnur: R-listanum hefur ekki þótt neitt sjálfsagðara en að svíkja flest loforð gagnvart Kjalnesingum og brjóta á þeim samninga, m.a. þann samning sem sveitarfélögin gerðu með sér við sameininguna. Kjalnesingar hafa svo sannarlega fengið að reyna að þeir eru olnbogabarn borgarinnar. Nú er svo komið að margir málsmetandi Kjalnesingar, telja sig og sveitunga sína hafa heldur betur verið hlunnfarna, og eru farnir að efast um réttmæti sameiningarinnar.
Öryggismál í ólestri
Kjalarnesið er beinlínis lífshættulegt íbúasvæði, börnum, unglingum og fullorðnum. Það er oft stórhættulegt ökumönnum og farþegum þeirra að hægja mikið á sér á Vesturlandsveginum og beygja síðan inn í Grundarhverfið vegna ógnarhraða og sívaxandi umferðar, sífellt stærri og fleiri vöruflutningabíla, að ekki sé nú talað um aðra og fáfarnari afleggjara Vesturlandsvegar á Kjalarnesi.
Sjálfstæðismenn í umhverfisráði lögðu fram tillögur um úrbætur í umferðaröryggismálum á Kjalarnesi 22. febrúar sl., en R-listinn frestaði tillögunni. Það er dæmigerð afstaða þeirra þegar málefni Kjalarness eru annars vegar.
Börn og unglingar á Kjalarnesi hafa reynt eftir megni að leika knattspyrnu í moldarsvaði meðfram Vesturlandsveginum þar sem umferðarþunginn er gífurlegur. Þar er ekki einu sinni rolluheld girðing og svo stutt í þjóðveginn að boltinn fer oft út á og yfir veginn. Börnin og unglingarnir hafa þolinmóð beðið eftir, einum einasta, þokkalegum sparkvelli frá því slíkum velli var lofað fyrir tveimur árum. En þar er líklega til of mikils mælst, enda bólar ekkert á vellinum.
Margsvikin loforð
Meira en helmingur vegakerfisins á Kjalarnesinu er malarvegir eins og tíðkuðust í Reykjavík áður en Geir Hallgrímsson, þáverandi borgarstjóri, útrýmdi slíkum götum og vegum á sjöunda áratug síðustu aldar. Nýbyggingin við grunnskóla hverfisins, Klébergsskóla, heldur ekki vatni og hefur ekki gert það frá því hún var tekin í notkun.
Fjögur ár, samfleytt, frestaðist skólahald við Klébergsskóla vegna seinkunar á framkvæmdum við skólann. Skólalóð Klébergsskóla er algjörlega ófrágengin, þrátt fyrir margítrekuð loforð um frágang hennar. Leikskólinn sem upphaflega og réttilega átti að verða þriggja deilda, var minnkaður niður í tveggja deilda skóla með þeim afleiðingum að hann er nú þegar orðinn of lítill. Aðkoman að honum er kennslubókardæmi í slysagildrum fyrir börn og fullorðna.
Enn hefur ekki verið lokið við gangstéttagerð og ýmsan annan frágang við götur Grundarhverfis þó nú hafi í mörg ár tíðkast í Reykjavík og öðrum bæjarfélögum að ganga frá slíkum framkvæmdaatriðum áður en íbúar flytja í hið nýja hverfi. Og svona gæti ég lengi haldið áfram. Allt er á sömu bókina lært.
Korter fyrir kosningar
Ekkert af þessu er þó aðalatriðið hér: Aðalatriðið er sjálfumgleði og hroki þeirra fulltrúa R-listans sem fimmtudaginn 23. mars sl. létu loks draga sig upp á Kjalarnes á kosningafund, korter fyrir kosningar, hlusta þar á umkvartanir íbúanna, - en tóku síðan til máls og töluðu fjálglega um sínar fallegu framtíðarhugsjónir, en létu umkvartanirnar íbúanna sem vind um eyru þjóta.
Slík framkoma sýnir fádæma valdhroka og er því frágangssök.
Það er athyglisvert, að mörg - jafnvel flest - þeirra úrlausnarefna sem hér koma til álita, kosta borgina óverulegar fjárhæðir miðað við öryggishagsmuni Kjalnesinga. Spurningin snýst því ekki um fjármuni, heldur áhuga á velferð borgaranna og að staðið sé við gerða samninga.
Við sjálfstæðismenn teljum það sjálfsagða skyldu okkar að standa við samninga og gefin loforð. Við viljum láta verkin tala, teljum það skyldu okkar að hlusta á íbúa borgarinnar, forgangsraða verkefnum og framkvæma án tafar það sem er aðkallandi.og varðar öryggi borgarbúa. Við munum því standa við þau fyrirheit á Kjalarnesinu sem R-listinn hefur svikið.
Greinin birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. mars 2006.



