Form


626

Rannsaka námusvæði á botni Hvalfjarðar


2011-09-28 20:43:45

Eymar Einarsson skipstjóri á Ebba AK hélt í morgun inn á Hvalfjörð í rannsóknarleiðangur fyrir Hafrannsóknastofnun. Ætlunin er að rannsaka malar- og sandnámur sem Björgun hf hefur notað í áratugi. Björn Gunnarsson sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun er leiðangursstjóri og segir hann tíma til kominn að athuga hvaða áhrif efnistakan hafi á lífríki sjávarbotnsins.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

625

Sundabraut sett á ís í minnst hálfan áratug


2011-09-23 08:41:14

Framkvæmdum við Sundabraut verður slegið á frest, að minnsta kosti næstu fimm árin. Þess í stað mun ríkisstjórnin setja einn milljarð á ári næstu tíu árin í tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að öllum stórframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu verði slegið á frest, á fyrri hluta tilraunaverkefnisins.

Nánar á visir.is


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

623

Með tvær verksmiðjur í takinu


2011-09-23 08:37:57

Skipulagsstofnun gaf út 20. september síðastliðinn ákvörðun um matsskyldu tveggja áþekkra natríumklóratverksmiðja finnska fyrirtækisins Kemira. Miðað er við að önnur verksmiðjan rísi á Grundartanga en hin á Bakka við Húsavík.

Nánar á mbl.is


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

624

Sundabraut sett á ís


2011-09-23 08:30:51

Sundabraut og bætt umferðaröryggi á Vesturlandsvegi hefur lengi verið eitt af stóru hagsmunamálum Kjalnesinga. Nú virðist að framkvæmdum við Sundabraut hafi verið slegið á frest. Þess í stað mun ríkisstjórnin setja einn milljarð á ári næstu tíu árin í tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Fróðlegt verður að sjá hve miklu af þessum fjármunum verður varið í bættar almenningssamgöngur á Kjalarnesi.
Sjá nánar hér á visir.is.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

622

Kemíra þarf ekki umhverfismat


2011-09-21 22:32:47

Fyrirhuguð natríumklóratverksmiðja finnska fyrirtækisins Kemíra á Grundartanga er að mati Skipulagsstofnunar ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og er því ekki háð mati á umhverfisáhrifum, að því er fram kemur í ákvörðun stofnunarinnar sem var birt í gær.

Nánar á mbl.is


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

621

Starfsmann vantar í Kátakot


2011-09-13 17:38:55

Starfsmann vantar í hlutastarf á Frístundaheimilið Kátakot. Vinnutími er frá kl. 13:30-17:30 alla virka daga. Starfið er út skólaárið 2011-2012. Nánari
upplýsingar veitir Björgvin Þór Þórhallsson, skólastjóri, í síma 566 6083.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

PENNAR


Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vítisfjörður
2025-11-08 02:12:53

1143

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Haraldur Eiríksson skrifar
Að eitra Hval­fjörð
2025-02-03 00:00:00

1144

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Kjalarnesið á ís
2022-04-24 00:00:00

6

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Að vera, eða að vera ekki
2022-03-13 00:00:00

1080

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vegna ummæla!
2021-04-18 23:15:19

1122

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Ásgeir Harðarson skrifar
Þóri á þing.
2009-04-24 00:20:44

368

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Þórir Ingþórsson skrifar
Vaknaðu herra samgönguráðherra
2008-09-12 11:45:35

303

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Marta Guðjónsdóttir skrifar
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
2006-05-03 00:00:00

52

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

VIÐBURÐIR





ÍBÚASAMTÖK KJALARNESS

SKÓGRÆKTARFÉLAG KJALARNESS


KIRKJUR


KJALNESINGUR