Form


588

Dagskrá Kjalarnesdaga


2010-06-25 01:08:39

Kjalnesingar bjóða heim 
26. og 27. júní.

Undanfarin ár hafa íbúasamtök Kjalarness staðið fyrir fjölskylduhátíð á Kjalarnesdegi. Með liðsinni fleiri félaga og stofnana verður nú boðið upp á viðameiri dagskrá en áður og síðasta helgin í júní tekin undir Kjalarnesdaga.

Í Fólkvangi verður framtakssömu fólki boðið upp á aðstöðu til að koma framleiðsluvörum sínum og öðrum söluvarningi á framfæri. Kvenfélagið Esja starfrækir kaffihús í Klébergsskóla. Ekki er þá eingöngu verið að horfa til Kjalnesinga heldur einnig að ná til þeirrar fjölmörgu sem fara umKjalarnesið á hverjum degi. Til þess að gera þetta mögulegt er nauðsynlegt að leita til sem flestra og þegar hafa undirtektir verið afskaplega góðar.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

447

Fegrum Kjalarnes


2010-06-15 22:07:45

Hverfisráð Kjalarness hefur ákveðið að veita þrenn umhverfis- og fegrunarverðlaun í formi viðurkenninga. Viðurkenningarnar verða veittar fyrir:

snyrtilegasta garðinn við íbúðarhús í hverfinu
snyrtilegasta bæjarstæðið á Kjalarnesi
snyrtilegasta fyrirtækið á Kjalarnesi

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

444

Kjalarnesdagar


2010-06-15 00:00:00
Undanfarin ár hafa íbúasamtök Kjalarness staðið fyrir fjölskylduhátíð á Kjalarnesdegi. Með liðsinni fleiri félaga og stofnana verður nú boðið upp á viðameiri dagskrá en áður og síðasta helgin í júní tekin undir Kjalarnesdaga.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

446

Vorsýning UMFK


2010-06-11 13:29:56
Vorsýning Ungmennafélags Kjalnesinga verður haldin í Íþróttahúsinu laugardaginn 12. júní n.k frá kl 11:00 – 13:00.

Sýningaratriði og leikir verða frá öllum deildum félagsins og sameiginlegt atriði fimleikastúlknanna og klappstýranna.
Frábær fjölskylduskemmtun og eru foreldrar og aðrir aðstandendur hvattir til að mæta.

Grillaðar pylsur í lokin.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

591

Kirkjubygging


2010-06-10 23:45:37

Kirkja Örlygs á Esjubergi –
helgistund kl 14 sunnudaginn 27. júní

Sunnudaginn 27. júní nk. kl 14 minnast Kjalnesingar þess að samkvæmt Landnámu stóð vagga kristinnar trúar á Kjalarnesi þar sem Örlygur Hrappson byggði fyrstu kirkju á Íslandi. Í tilefni þess verður helgistund að Esjubergi í umsjón sr. Gunnars Kristjánssonar prófasts og sr. Gunnþórs Ingasonar sérþjónustuprests á sviði þjóðmenningar. Að athöfn lokinni bjóða sögufélagið Steini og sóknarnefnd Brautarholtssóknar til kirkjukaffis í Klébergsskóla. Dr. Gunnar Kristjánsson flytur hugleiðingu þar sem hann horfir til sögunnar, sr. Gunnþór Ingason fjallar um heilagan Patrek postula Írlands, Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir segir frá Örlygi Hrappssyni frá Suðureyjum og Þórarinn Þórarinsson fjallar um Hof í Kjalnesingasögu. Tónlistarflutningur verður í umsjón Guðlaugs Viktorssonar og Eggerts Pálssonar.
Allir áhugasamir eru velkomnir.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

440
Frettamyndir/nokkvilitli.jpg|right||0||bottom|right|

Nemendaverðlaun Menntaráðs


2010-06-08 12:12:59
Nökkvi Fjalar Orrason, 10. bekk, hlaut á dögunum nemendaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur. Voru verðlaunin afhent við hátíðlega athöfn í Rimaskóla sl. sunnudag. Nökkvi var þar í góðum félagsskap en alls fengu 36 nemendur nemendaverðlaun fyrir að skara fram úr á ýmsum sviðum í sínum skólum.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

PENNAR


Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vítisfjörður
2025-11-08 02:12:53

1143

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Haraldur Eiríksson skrifar
Að eitra Hval­fjörð
2025-02-03 00:00:00

1144

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Kjalarnesið á ís
2022-04-24 00:00:00

6

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Að vera, eða að vera ekki
2022-03-13 00:00:00

1080

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vegna ummæla!
2021-04-18 23:15:19

1122

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Ásgeir Harðarson skrifar
Þóri á þing.
2009-04-24 00:20:44

368

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Þórir Ingþórsson skrifar
Vaknaðu herra samgönguráðherra
2008-09-12 11:45:35

303

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Marta Guðjónsdóttir skrifar
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
2006-05-03 00:00:00

52

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

VIÐBURÐIR





ÍBÚASAMTÖK KJALARNESS

SKÓGRÆKTARFÉLAG KJALARNESS


KIRKJUR


KJALNESINGUR