Form


372

Slysin gera ekki boð á undan sér


2009-06-04 09:17:53

Það var fyrir einskæra mildi að ekki varð alvarlegt umferðarslys við Grundarhverfi síðdagis þann 3ja júní sl. Tveir ungir piltar 5 - 6 ára fóru í tvígang yfir Vesturlandsveginn og aðeins munaði hársbreidd að þeir yrðu undir þungaflutningabíl. Það var afskaplega þung umverð þetta síðdegi og samkvæmt vef vegagerðarinnar fóru allt að 115 bílar á hverjum 10 mínútum en það samsvarar einum bíl á hverjum fimm sekúndum. Þar sem Vesturlandsvegurinn klýfur byggðina eru aðeins innan við 60 m í skólann og innan við 100 m eru í næstu hús. Það er því augljóst að mikil hætta er á ferðum þegar leiðin frá byggðinni upp á veginn er án nokkurra hindrana. Í því ljósi er það mikill ábyrgðahluti ef ekki verður strax komið upp girðingu frá Esjuskála að Klébergsskóla. Einnig þarf að fara í frekari aðgerðir til að lækka umferðarhraða.
Kæru íbúar. Álit okkar, umræða og þrýstingur er gríðarlega mikilvægur ekki síst nú þegar við höfum loforð núverandi samgönguráðherra um að nú í sumar eða haust verði farið í útboð á verkefnum varðandi umferðaöryggismál á Kjalarnesi.  Nýtum nú samtakamátt okkar, látum heyra í okkur og knýjum á um breytingar.

Í meðfylgjandi skjali atburðarásinni lýst þegar ungu piltarnir fóru yfir Vesturlandsveginn.  

 


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

371
Frettamyndir/klebergsskolilogo.jpg|left||0||bottom||

Klébergsskóli 80 ára


2009-05-28 20:18:51

{mosimage} Klébergsskóli fagnar 80 ára afmæli sínu með afmælishátíð í skólanum, laugardaginn 6. jún  n.k. Dagskráin hefst kl. 13 með athöfn í sal skólans. Að henni lokinni verða veitingar og list- og verkgreinasýning auk sérstakrar afmælissýningar. Dagskránni lýkur svo kl. 16.

 

Allir velkomnir!

 

Starfsmenn og nemendur


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

370

Margt að gerast á Kjalarnesinu


2009-05-07 10:07:33

Kjalarnesdagurinn verður 9. maí, sjá auglýsingu HÉR.

Opið fyrir alla, sjá auglýsingu HÉR.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

373

Orkustofnun framlengir leyfi til efnistöku af hafsbotni við Lundey og á Viðeyjarflaki í Kollafirði


2009-05-06 08:41:56
Orkustofnun veitti Björgun ehf. í Reykjavík leyfi til efnistöku af hafsbotni á tveimur svæðum í Kollafirði þann 12. febrúar 2009. Um var að ræða efnistökusvæði rétt sunnan og austsuðaustan Lundeyjar og á Viðeyjarflaki, nokkru norðan Viðeyjar. Leyft var að taka allt að 60.000 m3 af möl og sandi við Lundey og allt að 100.000 m3 á Viðeyjarflaki. Efnið hefur verið notað í steypu og malbik á höfuðborgarsvæðinu. Leyfið var veitt til skamms tíma eða til 1. maí 2009.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

369

Kjalarnesdagurinn 9. maí 2009


2009-05-04 10:27:18
Kjalarnesdagurinn 9. maí 2009 Samstarf Íbúasamtaka Kjalarness, Björgunarsveitarinnar Kjalar, UMFK, ITR og unglingadeildarinnar Flógyn og fleiri.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

367

UMFK fótboltinn á fleygiferð


2009-04-23 16:51:39

Krakkarnir í fótboltanum láta ekki deigan síga og spila grimmt.
6. flokkur lék við Þróttara nokkra leiki 6. apríl s.l.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

PENNAR


Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vítisfjörður
2025-11-08 02:12:53

1143

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Haraldur Eiríksson skrifar
Að eitra Hval­fjörð
2025-02-03 00:00:00

1144

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Kjalarnesið á ís
2022-04-24 00:00:00

6

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Að vera, eða að vera ekki
2022-03-13 00:00:00

1080

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vegna ummæla!
2021-04-18 23:15:19

1122

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Ásgeir Harðarson skrifar
Þóri á þing.
2009-04-24 00:20:44

368

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Þórir Ingþórsson skrifar
Vaknaðu herra samgönguráðherra
2008-09-12 11:45:35

303

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Marta Guðjónsdóttir skrifar
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
2006-05-03 00:00:00

52

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

VIÐBURÐIR





ÍBÚASAMTÖK KJALARNESS

SKÓGRÆKTARFÉLAG KJALARNESS


KIRKJUR


KJALNESINGUR