Form


366

Álit Skipulagsstofnunar vegna efnistöku af hafsbotni í sunnanverðum Faxaflóa


2009-04-15 10:55:24
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. Niðurstaða Skipulagsstofnunar er að vegna margföldunar á umsvifum efnistöku næstu árin, miðað við undangengna áratugi, verði neikvæð áhrif á lífríki og dragnótaveiðar önnur og meiri en verið hefur hingað til. Veruleg óvissa er um það í hverju áhrif á lífríki og veiðar kunni að felast, vegna þess að þekkingu skortir m.a. á mikilvægum þáttum í vistfræði sjávar í Faxaflóa og samspili efnistöku og dragnótaveiða með tilliti til botngerðar. Skipulagsstofnun telur að fyrst í stað eigi að veita bráðabirgðaleyfi til efnistöku við Syðra-Hraun, en frekara leyfi eigi að byggja á betri þekkingu á samspili efnistöku og veiða og mikilvægi svæðisins fyrir dýrastofna, m.a. með tilliti til hrygningar og uppeldis sílis og flatfiska.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

365

Skotvæðið á Álfsnesi


2009-04-15 07:26:15
Umfjöllun um skotsvæðið á Álfsnesi á VÍSI.IS

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

364

Vortónleikar Tónlistarskólans á Klébergi


2009-04-14 12:56:19

Vortónleikar Tónlistarskólans á Klébergi eru fyrirhugaðir laugardaginn 16 maí nk. kl 11 - 12.  Tónleikarnir verða haldninr í sal Klébergsskóla.  Allir velkomnir.

Skólastjóri


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

302

Umferðaröryggið barnanna vegna.


2009-04-03 11:20:10

Á opnum fundi samgöngunefndar Alþingis nú í morgun tók Helga Sigrún upp umferðaröryggismál á Kjalarnesi. Vitnaði hún í íbúafund hverfisráðs Kjalarness sem hún sat ásamt samgönguráðherra, Árna Johnsen og Svandísi Svavarsdóttur þann 1. apríl.  Það sem stóð upp úr á þessum fundi var öryggi barnanna sem í einhverjum mæli fara yfir Vesturlandsveg vegna þess að vegurinn klýfur byggðina. Helga Sigrún spyr ráðherra um viðbrögð í framhaldi af fundinum.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

363

Samgöngunefnd fjallar um Vesturlandsveg


2009-04-03 01:03:36

Í dag þann 3. apríl er opinn fundur í samgöngunefnd sem hefst kl. 9:30. Hægt er að fylgjast með útsendingu á slóðinni: http://www.althingi.is/vefur/mp.html  Þar ætlar Helga Sigrún að taka upp málefni okkar er varða Vesturlandsveginn og umferðaröryggismál á Kjalarnesi. Verum vakandi, fylgjumst með og þrýstum á framgang þessa mikilvæga málaflokks. 


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

362

Umferðaröryggið


2009-04-02 13:50:25

Hverfisráð Kjalarness hélt góðan fund um umferðaröryggismál á Kjalarnesi í gær þann 1. apríl. Þar mætti samgönguráðherra ásamt Helgu Sigrúnu og Árna Johnsen úr samgöngunefnd Alþingis ásamt Svandísi Svavarsdóttur borgarfulltrúa.  Sjá einnig blogg Helgu Sigrúnar um:  Eiga skólabörn að njóta vafans?


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

PENNAR


Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vítisfjörður
2025-11-08 02:12:53

1143

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Haraldur Eiríksson skrifar
Að eitra Hval­fjörð
2025-02-03 00:00:00

1144

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Kjalarnesið á ís
2022-04-24 00:00:00

6

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Að vera, eða að vera ekki
2022-03-13 00:00:00

1080

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Guðni Ársæll Indriðason skrifar
Vegna ummæla!
2021-04-18 23:15:19

1122

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Ásgeir Harðarson skrifar
Þóri á þing.
2009-04-24 00:20:44

368

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Þórir Ingþórsson skrifar
Vaknaðu herra samgönguráðherra
2008-09-12 11:45:35

303

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Marta Guðjónsdóttir skrifar
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
2006-05-03 00:00:00

52

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

VIÐBURÐIR





ÍBÚASAMTÖK KJALARNESS

SKÓGRÆKTARFÉLAG KJALARNESS


KIRKJUR


KJALNESINGUR