Efnistaka á Hafsbotni Hvalfjarðar - Frummatsskýrsla |
Meira um íþróttastarfið hjá UMFK haustið 2008Nú er íþróttastarfið hafið og gaman frá því að segja að þátttaka er enn að aukast. Við höfum nú fengið badminton þjálfara sem er tilbúinn til að hefja starf hjá okkur og væntum við góðra hluta þar. Knattspyrnan blómstrar og æfingatímum hefur fjölgað. Við viljum nota tækifærið og hvetja fleiri stúlkur til að láta sjá sig í boltanum en nú styttist í að náist í lið í kvennaflokki. Enn er verið að leita að sundþjálfara og er nokkur möguleiki á að það gangi upp á næstunni. Búið er að skrá inná frístundakortið þau börn sem eru að iðka íþróttir hjá U.M.F.K. inná www.reykjavik.is og biðjum við foreldra um að fara inn á vefinn og samþykkja sem fyrst. Þau börn sem ekki eru skráð en vilja nýta frístundakortið geta sent tölvupóst með nafni og kennitölu barns, svo og íþróttagrein á netfangið gunnagrims@simnet.isAðrir þátttakendur eru hvattir til að ganga frá greiðslum sem fyrst. Hægt er að ganga frá greiðslu í Íþróttamiðstöðinni (minni á 20% systkinaafslátt) eða leggja inná reikn. U.M.F.K. sem er : 0315-26-030402 kt: 700895-2979Þá er mikilvægt að skrá nafn barnsins inná skýringar með greiðslu, annars kemur ekki fram hver greiðir. |
Badmintonkvöld |
Umsög Orkustofnunar um frummatsskýrslu.Orkustofnun hefur sent frá sér umsögn um frummatsskýrslu Björgunar ehf vegna efnistöku á hafsbotni í Kollafirði , Faxaflóa. Í skýrslunni er m.a. rekin aðdragandinn að umhverfismatinu hjá Björgun ehf og framkoma þeirra gagnvart kröfunni um umhverfismat. Skýrsluna má fina á vef Orkustofnunar os.is en einnig beint HÉR. |
Sporna gegn innbrotum og tjóniBúið er að setja á laggirnar nágrannavörslu í Grundarhverfi á Kjalarnesi en þetta er í fyrsta skipti sem farið er af stað með slíkt átak í heilu borgarhverfi. Um er að ræða samstarfsverkefni milli íbúa hverfisins, lögreglunnar og Reykjavíkurborgar. Áður hefur nágrannavarsla farið fram í einstökum götum borgarinnar og almennt hefur mikil ánægja verið með það. |
Ráðherra: Hábrú enn möguleikiKristján Möller, samgönguráðherra, vill halda opnum þeim möguleika að byggja hábrú yfir Sundin í Reykjavík og yfir á Kjalarnes, þótt vilji borgaryfirvalda standi til að gera göng. |
![]() |
1143 |
![]() |
1144 |
![]() |
6 |
![]() |
1080 |
![]() |
1122 |
![]() |
368 |
![]() |
303 |
![]() |
52 |