Strætó breytir áætlunNýjar tímatöflur Strætó bs taka gildi á Kjalarnesi þann 4. nóv. nk. Kjalnesingar eru hvattir til að kynna sér nýjar tímaáætlanir á heimasíðu Strætó bs. Einnig eru þær hér eingöngu fyrir Kjalarnes með fyrirvara um prentvillur. |
Nýjar tímatöflur Strætó bs taka gildi á Kjalarnesi þann 4. nóv. nk. Kjalnesingar eru hvattir til að kynna sér nýjar tímaáætlanir á heimasíðu Strætó bs. Einnig eru þær hér eingöngu fyrir Kjalarnes með fyrirvara um prentvillur.
Það sem fyrst og fremst skilur Kjalarnesið frá öðrum hverfum borgarinnar er víðáttan og fjarlægðin frá miðbænum. Því gefur augaleið að
samgöngur eru afar mikilvægar fyrir okkur hér á Kjalarnesi. Kjalarnesið er vissulega fámennasta hverfi Reykjavíkur en við þurfum engu að síður á almenningssamgöngum að halda. Börn og unglingar eru stærstu notendur strætó á Kjalarnesi. Í haust var ferðin sem vanalega fór strax eftir skóla feld niður þannig að nemendur missa af æfingum sem þeim stóð til boða í Mos og niður í bæ. Furðuleg ráðstöfun sem er ekki til þess fallin að þjóna íbúunum eða vistvænum samgöngum! Lítil breyting til bóta verður á þessum tíma í nýrri og endurskoðaðri áætlun sem tekur gildi nú á sunnudaginn þann 4. nóvember. Þrátt fyrir ótrúlega öflugt félagastarf sem bíður upp á fjölbreytta afþreyingu vantar samt mikið upp á að við njótum þeirra fjölbreytni sem öðrum hverfum borgarinnar stendur til boða. Við nýtum frístundakortið en takmarkaðar almenningssamgöngur hafa í mörgum tilvikum hamlað nýtingu þeirra þegar sótt er í viðburði niður í bæ. Því hafa íbúar margsinnis farið fram á að ferðir almenningsvagna séu a.m.k. á klukkustundar fresti. ÁH
GRÆNT KJALARNESHverfisráð·Kjalarness hefur rætt um stefnumörkun fyrir hverfið okkar, Kjalarnesið, og·hvernig við getum dregið fram sérstöðu·Kjalarness innan Reykjavíkurborgar. Um·verkefni hverfisráða segir m.a: "Hverfisráð skulu stuðla að hvers konar·samstarfi innan hverfis. |
Hugmyndin·er að á næstunni verði undirrituð viljayfirlýsing um framtíðarsýn Kjalarness·undir heitinu·Grænt Kjalarnes.Hverfisráðið telur að·samkomulag íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda geti stuðlað að·skýrari ímynd Kjalarness og um leið vakið okkur til umhugsunar um í hvernig·nærsamfélagi við viljum vera. Byggt verður á hugmyndum sem fram hafa komið á·íbúafundum á Kjalarnesi á undanförnum árum. Hverfisráðið telur mikilvægt að ná·til sem flestra stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka á·Kjalarnesi.
Við biðjum þá sem·eru í forsvari fyrir stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki og hafa áhuga á að fá·nánari upplýsingar um·Grænt Kjalarnes að hafa samband við okkur innan·viku, þ.e. í síðasta lagi·mánudaginn 5. nóvember.
Með ósk um góðar·undirtektir,
Sigríður·Pétursdóttir formaður hverfisráðsins, netfang:·sigridu@hi.is
Eldey Huld Jónsdóttir,·varaformaður hverfisráðsins, netfang:·avalon@simnet.is
Sveinbjörn Grétarsson,·netfang:·sg@1.is
Hafsteinn Númason,·netfang:·haddinu@gmail.com
Hólmar Þór·Stefánsson, netfang:·holmarthor@gmail.com
Margrét Kristín·Blöndal, netfang:·maggaogstina@hotmail.com
Guðsþjónusta í BrautarholtskirkjuÚtvarpsmessa verður í Brautarholtskirkju sunnudaginn 21. október kl 11:00. |
Útvarpsmessa verður í Brautarholtskirkju sunnudaginn 21. október kl 11:00.
Prestur er sr. Gunnar Kristjánsson prófastur
Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir
Sönghópur: Særún Harðardóttir, Hafsteinn Þórólfsson,
Svava Kristín Ingólfsdóttirog Gísli Magnason.
Fiðluleikur: Ágústa Dómhildur Karlsdóttir
Allir eru hjartanlega velkomnir í guðsþjónustuna í Brautarholtskirkju.
"IÐNGARÐAR" á KjalarnesiStjórn Þróunarfélags Kjalnesinga vill kanna áhuga heimamanna á byggingu iðnaðarhúsnæðis á lóð í framhaldi af lóð Áhaldahússins. |
Stjórn Þróunarfélags Kjalnesinga vill kanna áhuga heimamanna á byggingu iðnaðarhúsnæðis á lóð í framhaldi af lóð Áhaldahússins.
Fyrir liggur áhugi nokkurra aðila að koma upp aðstöðu fyrir starfsemi sína hér á Kjalarnesinu, það er styrkur allra ef hægt væri að sameinast um byggingu iðnaðarhúsnæðis sem skift yrði niður í hentugar stærðir fyrir hvern og einn. Þessi hugmynd er einungis á frumstigi og því mikilvægt að fá sem fyrst upplýsingar um áhugasama aðila sem vilja skoða þennan möguleika. Þeir geta sett sig í samband við formann Þróunarfélags Kjalnesinga, Guðna Indriðason í síma 615-6383 eða sent póst á thkjal@kjalarnes.is
Vinningsnúmer í október!Heilsustefna Grafarvogs og Kjalarness Vinningsnúmer í október 2012: |
Heilsustefna Grafarvogs og Kjalarness
Vinningsnúmer í október 2012:
1561
Vinningur í október er fjölskyldumáltíð í boði Nings.
Vinning ber að nálgast í Miðgarði, Gylfaflöt 5.
Framvísa þarf bæklingnum um Heilsustefnuna með viðkomandi númeri til að fá vinning afhentan.
Ef ekki er búið að sækja vinning innan 3ja mánaða frá útdrætti fer hann aftur í pottinn.
Október vinning þarf því að sækja fyrir lok janúar 2013.
HREKKJAVÖKUPARTÝSunnudaginn 7. október kl. 15-17 ætlar kvenfélagið Esja að halda hrekkjavökupartý fyrir yngri kynslóðina |
Sunnudaginn 7. október kl. 15-17 ætlar kvenfélagið Esja að halda hrekkjavökupartý fyrir yngri kynslóðina
Aðgangseyrir er 300 krónur og rennur hann óskiptur til foreldrafélagsins leikskólanum Bergi. Innifalið í aðgangseyri er drykkir, RiceCrispy-kökur og popp. Foreldrar velkomnir og gaman væri ef sem flestir gætu mætt í búningum.
![]() |
1143 |

![]() |
1144 |

![]() |
6 |

![]() |
1080 |

![]() |
1122 |

![]() |
368 |

{mosimage}Það er nokkuð síðan að við Kjalnesingar höfum átt frambjóðendur ofarlega á lista stjórnmálaflokka til Alþingis. Við alþingiskosningarnar n.k. laugardag er heimamanninn Þórir Ingþórsson, Esjugrund 52 í þriðja sæti á lista framsóknarmanna í okkar kjördæmi. Þórir hefur barist ötullega fyrir málefnum okkar Kjalnesinga sem varaformaður hverfisráðsins og er ekki neinn vafi á að hann sem þriðji maður á listanum geti haft veruleg áhrif á hagsmunamál okkar ef við veitum Framsóknarflokknum brautargengi.![]() |
303 |

Samgöngur til og frá höfuðborginni
Að undanförnu hafa átt sér stað talsverðar umræður um samgöngumál og umferðaröryggi. Sú umræða hefur oftar en ekki skapast í framhaldi af slysum eða umferðaróhöppum og inn í þá umræðu blandast eðlilega samgöngur til og frá Reykjavík. Það er því hryggilegt að sjá hversu litla áherslu stjórnvöld leggja á frekari samgöngubætur til og frá höfuðborginni okkar. Samtök Sveitarfélaga á Vesturlandi hafa síðastliðin ár lagt mikla áherslu á mikilvægi tvöföldunar á þjóðvegi 1 frá Holtavörðuheiði að Kollafirði. Hafa samtökin bent á mikilvægi þess að hefjast framkvæmda sem fyrst vegna þeirrar miklu aukningar á þungaflutningum á þessum slóðum síðastliðin ár. Hafa önnur samtök, þar á meðal íbúasamtökin á Kjalanesi sem og Hverfisráð Kjalarness, sent frá sér ályktanir sem snúa að þessum málum.
Slit og slysahætta
Í dag er ekkert flutningaskip sem siglir úti fyrir ströndum Íslands með viðkomu í helstu höfnum hringinn í kringum landið. Það er eðlilegt að vöruflutningar hafi færst í auknum mæli inn á þjóðvegakerfið vegna krafna um ferskleika vöru við afhendingu. Staðreyndin er hins vegar sú að þróunin hefur leitt til þess að allir flutningar fara landleiðina því ekki hefur þótt hagkvæmt að aðeins hluti vöruflutninga sé á hafi úti. Allir flutningar fara því landleiðina með þeirri miklu umferð sem því fylgir og ómældu sliti á vegakerfinu. Þessir flutningabílar eru allt að 50 tonn fullhlaðnir á meðan meðalfólksbíllinn er innan við 2 tonn. Hver maður sér hina auknu slysahættu sem af þessu hefur hlotist. Það er því löngu tímabært að kanna kosti þess að niðurgreiða strandsiglingar með opinberu fé því talsverður sparnaður hlýtur að koma á móti vegna minna slits á vegakerfi landsmanna og vegna minni slysahættu. Þetta er sú alvarlega staðreynd sem blasir við okkar í dag – flutningar á vörum og sjávarfangi fara þvers og kruss um þjóðvegi landsins, flestir með viðkomu í höfuðborginni, og aldrei kemur Sundabraut.
Hefjumst handa við tvöföldun þjóðveganna til og frá Reykjavík
Ég tel að á meðan samgönguráðherra er að velta fyrir sér legu Sundabrautar og því hvort innheimta eigi veggjald vegna þeirrar framkvæmdar þá gæti hann byrjað að gera vegina til og frá höfuðborginni sómasamlega. Hann gæti byrjað nú þegar að tvöfalda akreinar frá Borgarnesi að Reykjavík, þ.e. að þeim stað sem Sundabraut kemur upp á Kjalarnes. Vesturlandsvegur í þeirri mynd sem hann er í nú gengur ekki og þolir enga bið. Hið sama á við um Suðurlandsveg til Selfoss. Við höfum horft upp á svo mörg alvarleg slys á þessum vegaköflum undanfarin ár og alltaf þyngist umferðin.
Landsmenn eru orðnir langþreyttir á aðgerðaleysi samgönguyfirvalda og vilja skýr svör og ákvarðanir.
Því segi ég vaknaðu herra samgönguráðherra. Slysin gera ekki boð á undan sér.
Þórir Ingþórsson
Esjugrund 52
116 Kjalarnesi
![]() |
52 |

Marta Guðjónsdóttir fulltrúi sjálfstæðismanna í Hverfaráði Kjalarness skrifaði grein sem birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. mars 2006.
{mosimage}
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
Ég hef setið í hverfisráði Kjalarness á þessu kjörtímabili og fylgst þar með þeim vinnubrögðum R-listans er lúta að málefnum íbúanna. Þau vinnubrögð geta ekki fengið aðra umsögn en vítaverð vanræksla. Tekið hefur verið á brýnustu hagsmuna- og öryggismálum íbúanna með fullkomnu sinnuleysi og framtaksleysi og endalausum innantómum loforðum sem flest, ef ekki öll, hafa lent upp í erminni.
Kjalnesingar hlunnfarnir
Sú var tíðin, 1998, að fyrrverandi borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hafði uppi fjálglega frasa um gagnkvæma hagsmuni, beggja sveitarfélaganna, Reykjavíkur og Kjalarness, af sameiningunni.
En nú er öldin önnur: R-listanum hefur ekki þótt neitt sjálfsagðara en að svíkja flest loforð gagnvart Kjalnesingum og brjóta á þeim samninga, m.a. þann samning sem sveitarfélögin gerðu með sér við sameininguna. Kjalnesingar hafa svo sannarlega fengið að reyna að þeir eru olnbogabarn borgarinnar. Nú er svo komið að margir málsmetandi Kjalnesingar, telja sig og sveitunga sína hafa heldur betur verið hlunnfarna, og eru farnir að efast um réttmæti sameiningarinnar.
Öryggismál í ólestri
Kjalarnesið er beinlínis lífshættulegt íbúasvæði, börnum, unglingum og fullorðnum. Það er oft stórhættulegt ökumönnum og farþegum þeirra að hægja mikið á sér á Vesturlandsveginum og beygja síðan inn í Grundarhverfið vegna ógnarhraða og sívaxandi umferðar, sífellt stærri og fleiri vöruflutningabíla, að ekki sé nú talað um aðra og fáfarnari afleggjara Vesturlandsvegar á Kjalarnesi.
Sjálfstæðismenn í umhverfisráði lögðu fram tillögur um úrbætur í umferðaröryggismálum á Kjalarnesi 22. febrúar sl., en R-listinn frestaði tillögunni. Það er dæmigerð afstaða þeirra þegar málefni Kjalarness eru annars vegar.
Börn og unglingar á Kjalarnesi hafa reynt eftir megni að leika knattspyrnu í moldarsvaði meðfram Vesturlandsveginum þar sem umferðarþunginn er gífurlegur. Þar er ekki einu sinni rolluheld girðing og svo stutt í þjóðveginn að boltinn fer oft út á og yfir veginn. Börnin og unglingarnir hafa þolinmóð beðið eftir, einum einasta, þokkalegum sparkvelli frá því slíkum velli var lofað fyrir tveimur árum. En þar er líklega til of mikils mælst, enda bólar ekkert á vellinum.
Margsvikin loforð
Meira en helmingur vegakerfisins á Kjalarnesinu er malarvegir eins og tíðkuðust í Reykjavík áður en Geir Hallgrímsson, þáverandi borgarstjóri, útrýmdi slíkum götum og vegum á sjöunda áratug síðustu aldar. Nýbyggingin við grunnskóla hverfisins, Klébergsskóla, heldur ekki vatni og hefur ekki gert það frá því hún var tekin í notkun.
Fjögur ár, samfleytt, frestaðist skólahald við Klébergsskóla vegna seinkunar á framkvæmdum við skólann. Skólalóð Klébergsskóla er algjörlega ófrágengin, þrátt fyrir margítrekuð loforð um frágang hennar. Leikskólinn sem upphaflega og réttilega átti að verða þriggja deilda, var minnkaður niður í tveggja deilda skóla með þeim afleiðingum að hann er nú þegar orðinn of lítill. Aðkoman að honum er kennslubókardæmi í slysagildrum fyrir börn og fullorðna.
Enn hefur ekki verið lokið við gangstéttagerð og ýmsan annan frágang við götur Grundarhverfis þó nú hafi í mörg ár tíðkast í Reykjavík og öðrum bæjarfélögum að ganga frá slíkum framkvæmdaatriðum áður en íbúar flytja í hið nýja hverfi. Og svona gæti ég lengi haldið áfram. Allt er á sömu bókina lært.
Korter fyrir kosningar
Ekkert af þessu er þó aðalatriðið hér: Aðalatriðið er sjálfumgleði og hroki þeirra fulltrúa R-listans sem fimmtudaginn 23. mars sl. létu loks draga sig upp á Kjalarnes á kosningafund, korter fyrir kosningar, hlusta þar á umkvartanir íbúanna, - en tóku síðan til máls og töluðu fjálglega um sínar fallegu framtíðarhugsjónir, en létu umkvartanirnar íbúanna sem vind um eyru þjóta.
Slík framkoma sýnir fádæma valdhroka og er því frágangssök.
Það er athyglisvert, að mörg - jafnvel flest - þeirra úrlausnarefna sem hér koma til álita, kosta borgina óverulegar fjárhæðir miðað við öryggishagsmuni Kjalnesinga. Spurningin snýst því ekki um fjármuni, heldur áhuga á velferð borgaranna og að staðið sé við gerða samninga.
Við sjálfstæðismenn teljum það sjálfsagða skyldu okkar að standa við samninga og gefin loforð. Við viljum láta verkin tala, teljum það skyldu okkar að hlusta á íbúa borgarinnar, forgangsraða verkefnum og framkvæma án tafar það sem er aðkallandi.og varðar öryggi borgarbúa. Við munum því standa við þau fyrirheit á Kjalarnesinu sem R-listinn hefur svikið.
Greinin birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. mars 2006.



