Pappír er ekki rusl!
Fréttatilkynning 1.10. 2012 Bláa tunnan byrjar vel á |
![]()
Fréttatilkynning 1.10. 2012
Bláa tunnan byrjar vel á
Starfsmenn sorphirðu Reykjavíkurborgar gengu í síðustu viku á milli húsa á Kjalarnesi og kynntu bláu tunnuna og breytingar á sorphirðu. Íbúar á Kjalarnesi verða fyrstir í Reykjavík til að hefja almenna flokkun pappírs og umbúða með skilagjald frá heimilissorpi. Óheimilt verður að henda pappír og pappa í tunnur fyrir almennt heimilissorp á Kjalarnesi frá og með deginum í dag, 1. október.
Fjölmörg heimili á Kjalarnesi voru þegar búin að koma sér upp blárri tunnu fyrir pappír og pappa en margir nýttu sér tækifærið og pöntuðu bláu tunnuna þegar starfsmenn sorphirðunnar litu við. Dreift var bæklingi inn á öll heimili á Kjalarnesi um breytingarnar en þar kemur m.a. fram hvað má setja í bláu tunnuna en helstu flokkarnir eru dagblöð, tímarit, fernur, sléttur umbúðapappi og bylgjupappi. Forðast skal að setja pappír með matarafgöngum í bláu tunnuna en hirt verður úr henni á 20 daga fresti.
Íbúar í Reykjavík verða þó ekki skyldaðir til að fá sér bláu tunnuna því einnig er boðið upp á þann möguleika að fólk flokki pappírinn frá og fari sjálft með hann á grenndarstöðvar sem verða efldar verulega samhliða innleiðingunni. Endurvinnslustöðvar Sorpu taka einnig við pappír og pappa.
Pappírsflokkunin hefst á Kjalarnesi en síðan fylgja hin hverfin á eftir á mánaðarfresti. Bæklingur mun verða sendur inn á hvert heimili í borginni þar sem breytingarnar eru kynntar ítarlega. Íbúar um alla borg eru þó hvattir til að hefja flokkun pappírs strax enda er pappírinn verðmætt endurvinnsluefni. Hægt er að panta bláu tunnuna með því að senda tölvupóst á sorphirda@reykjavik.is eða með símtali í þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111.
Sorpa sendir allan pappír sem safnast til Svíþjóðar þar sem hann er flokkaður enn frekar og endurunninn. Þess má geta að íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru þegar mjög duglegir í því að flokka endurvinnsluefni frá heimilissorpi. Samkvæmt upplýsingum frá Sorpu fara nú þegar um 35.2% af úrgangi til efnisendurvinnslu og erum við engir eftirbátar t.d. Svía og Dana í þeim efnum. Með þeim skrefum sem nú eru stigin við flokkun pappírsefna getur þetta hlutfall orðið enn hærra en stefnt er að því að þegar öll hverfi í Reykjavík séu byrjuð að flokka muni 80% pappírsefna safnast.
Bláa tunnan kostar 7.400 krónur á ári en með því að flokka pappírsefni frá minnkar umfang heimilissorps um 30% að meðaltali. Heimili með bláu tunnuna geta sparað sér um 1.000 krónur í sorphirðugjöld á ársgrundvelli með því að fá sér græna tunnu fyrir heimilissorp en hún er einnig tæmd á 20 daga fresti.
Önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa þegar hafið söfnun pappírsefna.
Tímasetningar innleiðingar
2012
Kjalarnes, október.
Grafarholt – Úlfarsárdalur, nóvember
2013
Grafarvogur – Árbær, janúar
Breiðholt, febrúar
Háaleiti – Bústaðir – Laugardalur, mars
Miðborg – Hlíðar, apríl
Vesturbær, maí
Hægt er að panta bláu tunnuna með tölvupósti á sorphirda@reykjavik.is eða í síma 411 1111
Hvað er hverfisráð?Munið viðtalstíma hverfisráðs Kjalarness sem er að jafnaði í Fólkvangi fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði. Í Reykjavík eru starfandi tíu |
Munið viðtalstíma hverfisráðs Kjalarness sem er að jafnaði í Fólkvangi fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði.
Í Reykjavík eru starfandi tíu
hverfisráð og er eitt þeirra hverfisráð Kjalarness. Hverfisráðið getur verið farvegur ólíkra sjónarmiða og ábendinga íbúa Kjalarness inn í borgarkerfið. Til þess að svo megi verða þurfa íbúar að koma ábendingum og hugmyndum til ráðsins. Í ráðinu eiga fimm einstaklingar sæti auk áheyrnarfulltrúa íbúasamtakanna. Í vetur verður hverfisráðið með viðtalstíma fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl. 18 - 19 í Fólkvangi.
Lesa má um hverfisráð Reykjavíkurborgar á slóðinni http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-2784/4398_view-814/ en þar segir m.a:
"Hverfisráð skulu stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfis. Þau eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda, og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Þannig eru hverfisráð ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfum og stuðla að eflingu félagsauðs í hverfum. Þá stuðla hverfisráð að kynningu skipulags, framkvæmda og þjónustu borgarstofnana í hverfunum og beita sér fyrir því að samráð verði haft við íbúa, allt eftir eðli máls hverju sinni. Hverfisráð fá til kynningar auglýstar breytingar á skipulagi og umhverfi er snerta hverfið auk kynninga á stærri framkvæmdum og meginbreytingum á þjónustu.
Hverfisráð geta gert tillögur til stjórnar eignasjóðs um forgangsröðun framkvæmda í hverfinu."
Með ósk um gott samstarf,
Sigríður Pétursdóttir
formaður hverfisráðs Kjalarness
Breytingar í sorphirðu |
Heilsustefna KjalarnessÚt er komin heilsustefna·Grafarvogs og Kjalarness sem m.a. annars er unnin af forvarnarhópnum Búa undir leiðsögn |
Út er komin heilsustefna·Grafarvogs og Kjalarness sem m.a. annars er unnin af forvarnarhópnum Búa undir leiðsögn
starfsmanna Miðgarðs. Forvarnarhópurinn Búi á Kjalarnesi er samvinnuverkefni nokkurra félaga og stofnana sem hittast reglulega í þeim tilgangi að hafa·jákvæð áhrif á forvarnarmál.
Að þessum forvarnahópi Búa á Kjalarnesi standa eftirfarandi: Klébergsskóli, lögreglan á höfuðborgasvæðinu, Brautarholtskirkja, Íbúasamtök Kjalarness, leikskólinn Berg, UMFK, foreldrar grunnskólabarna, Björgunarsveitin Kjölur og Miðgarður. Meðal verkefna sem Búi hefur komið að er segulspjaldið "Samvera" sem sent var inn á hvert heimili haustið 2010. Þessa daga er verið að dreifa inn á heimili afrakstri annars verkefnis sem er „heilsustefna·Grafarvogs og Kjalarness“. Tilgangur heilsustefnunnar er að hvetja börn og ungmenni til að tileinka sér heilsusamlegan lífsstíl. Til að svo geti orðið er mikilvægt að umhverfi, aðbúnaður, viðhorf og samskipti séu með þeim hætti að það efli sjálfstraust þeirra og styrkleika.Guðsþjónusta í BrautarholtskirkjuGuðsþjónusta í Brautarholtskirkju·sunnudaginn 23. september kl. 11:00. |
Guðsþjónusta í Brautarholtskirkju·sunnudaginn 23. september kl. 11:00.
Prestur er sr. Gunnar Kristjánsson. Félagar úr·Karlakór Kjalnesinga leiða söng. Organisti er Páll Helgason.
Brautarholtskirkja á Kjalarnesi má teljast afkomandifyrstu kirkju á Íslandi, þeirrar kirkju sem suðureyski landnámsmaðurinn Örlykur Hrappsson reisti á Esjubergi skömmu fyrir árið 900 og frá segir í Landnámu og víðar.··Kirkjan, sem þar er nú, var reist árið 1857 af Eyjólfi Þorvarðarsyni frá Bakka á Kjalarnesi. Áratug eftir vígslu kirkjunnar kom þjóðskáldið séra Matthías Jochumsson til þjónustu í kirkjunni (1867-73)Breytt sorphirðaPappír er ekki rusl var m.a. yfirskrift á vel sóttum fundi hverfisráðsins í Fólkvangi þann 13. september sl. |
Pappír er ekki rusl var m.a. yfirskrift á vel sóttum fundi hverfisráðsins í Fólkvangi þann 13. september sl.
Þar var fjallað um breytingar í sorphirðu á Kjalarnesi. Guðmundur B. Friðriksson skrifstofustjóri á Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar kynnti nýtt sorphirðukerfi sem í október verður innleitt á·Kjalarnesi, fyrst hverfa í Reykjavík.
Flokkarnir sem falla undir pappír eru t.d. bylgjupappi, dagblöð og tímarit, fernur, skrifstofupappír og sléttur pappír. Á fundinum kom fram að fyrirhuguð er breyting á móttöku umbúða með skilagjaldi á höfuðborgarsvæðinu. Á Kjalarnesi verður komið upp söfnunarkúlu sem félög á Kjalarnesi sjá um að tæma og koma í verð. Auk þess verður bætt við grenndargámi fyrir gler og íláti fyrir rafhlöður. Þannig hafa íbúar kost á að velja sér leið til flokkunar.
Í dag kostar svarta tunnan kr. 16.300 á ári og er losuð á 10 daga fresti. Íbúar geta nú valið að fá sér bláa tunnu fyrir pappa ásamt grænni tunnu sem losaðar eru á 20 daga fresti. Samtals kostar sú lausn kr. 15.500,- á ári. Þá er hægt að nýta sér grenndargáma og græna tunnu og þá er kosnaðurinn einungis kr. 8.150,- á ári. Þannig verður einungis heimilt að setja almennt heimilissorp (enginn pappi) og málma í svörtu/grænu tunnuna.
Á fundinum kynnti Guðmundur hugmynd um að nýta næringarefnin heimavið með heimajarðgerð. Til stendur að Reykjavíkurborg greiði niður jarðgerðarílát fyrir Kjalnesinga í þessum tilgangi en það verkefni verður nánar kynnt á næstu vikum. Þá mun á næstunni vaskur hópur starfsmanna Umhverfis- og skipulagssviðs heimsækja Kjalnesinga og kynna nánar þetta verkefni og svara spurningum íbúa. Nánari upplýsingar um flokkun má nálgast á vefsíðunni www.blatunna.is. Þá er hægt að senda fyrirspurnir á netfagnið sorphirda@reykjavik.is eða í síma borgarinnar 4 11 11 11.
![]() |
1143 |

![]() |
1144 |

![]() |
6 |

![]() |
1080 |

![]() |
1122 |

![]() |
368 |

{mosimage}Það er nokkuð síðan að við Kjalnesingar höfum átt frambjóðendur ofarlega á lista stjórnmálaflokka til Alþingis. Við alþingiskosningarnar n.k. laugardag er heimamanninn Þórir Ingþórsson, Esjugrund 52 í þriðja sæti á lista framsóknarmanna í okkar kjördæmi. Þórir hefur barist ötullega fyrir málefnum okkar Kjalnesinga sem varaformaður hverfisráðsins og er ekki neinn vafi á að hann sem þriðji maður á listanum geti haft veruleg áhrif á hagsmunamál okkar ef við veitum Framsóknarflokknum brautargengi.![]() |
303 |

Samgöngur til og frá höfuðborginni
Að undanförnu hafa átt sér stað talsverðar umræður um samgöngumál og umferðaröryggi. Sú umræða hefur oftar en ekki skapast í framhaldi af slysum eða umferðaróhöppum og inn í þá umræðu blandast eðlilega samgöngur til og frá Reykjavík. Það er því hryggilegt að sjá hversu litla áherslu stjórnvöld leggja á frekari samgöngubætur til og frá höfuðborginni okkar. Samtök Sveitarfélaga á Vesturlandi hafa síðastliðin ár lagt mikla áherslu á mikilvægi tvöföldunar á þjóðvegi 1 frá Holtavörðuheiði að Kollafirði. Hafa samtökin bent á mikilvægi þess að hefjast framkvæmda sem fyrst vegna þeirrar miklu aukningar á þungaflutningum á þessum slóðum síðastliðin ár. Hafa önnur samtök, þar á meðal íbúasamtökin á Kjalanesi sem og Hverfisráð Kjalarness, sent frá sér ályktanir sem snúa að þessum málum.
Slit og slysahætta
Í dag er ekkert flutningaskip sem siglir úti fyrir ströndum Íslands með viðkomu í helstu höfnum hringinn í kringum landið. Það er eðlilegt að vöruflutningar hafi færst í auknum mæli inn á þjóðvegakerfið vegna krafna um ferskleika vöru við afhendingu. Staðreyndin er hins vegar sú að þróunin hefur leitt til þess að allir flutningar fara landleiðina því ekki hefur þótt hagkvæmt að aðeins hluti vöruflutninga sé á hafi úti. Allir flutningar fara því landleiðina með þeirri miklu umferð sem því fylgir og ómældu sliti á vegakerfinu. Þessir flutningabílar eru allt að 50 tonn fullhlaðnir á meðan meðalfólksbíllinn er innan við 2 tonn. Hver maður sér hina auknu slysahættu sem af þessu hefur hlotist. Það er því löngu tímabært að kanna kosti þess að niðurgreiða strandsiglingar með opinberu fé því talsverður sparnaður hlýtur að koma á móti vegna minna slits á vegakerfi landsmanna og vegna minni slysahættu. Þetta er sú alvarlega staðreynd sem blasir við okkar í dag – flutningar á vörum og sjávarfangi fara þvers og kruss um þjóðvegi landsins, flestir með viðkomu í höfuðborginni, og aldrei kemur Sundabraut.
Hefjumst handa við tvöföldun þjóðveganna til og frá Reykjavík
Ég tel að á meðan samgönguráðherra er að velta fyrir sér legu Sundabrautar og því hvort innheimta eigi veggjald vegna þeirrar framkvæmdar þá gæti hann byrjað að gera vegina til og frá höfuðborginni sómasamlega. Hann gæti byrjað nú þegar að tvöfalda akreinar frá Borgarnesi að Reykjavík, þ.e. að þeim stað sem Sundabraut kemur upp á Kjalarnes. Vesturlandsvegur í þeirri mynd sem hann er í nú gengur ekki og þolir enga bið. Hið sama á við um Suðurlandsveg til Selfoss. Við höfum horft upp á svo mörg alvarleg slys á þessum vegaköflum undanfarin ár og alltaf þyngist umferðin.
Landsmenn eru orðnir langþreyttir á aðgerðaleysi samgönguyfirvalda og vilja skýr svör og ákvarðanir.
Því segi ég vaknaðu herra samgönguráðherra. Slysin gera ekki boð á undan sér.
Þórir Ingþórsson
Esjugrund 52
116 Kjalarnesi
![]() |
52 |

Marta Guðjónsdóttir fulltrúi sjálfstæðismanna í Hverfaráði Kjalarness skrifaði grein sem birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. mars 2006.
{mosimage}
Kjalarnesið - Vítaverð vanræksla R-listans
Ég hef setið í hverfisráði Kjalarness á þessu kjörtímabili og fylgst þar með þeim vinnubrögðum R-listans er lúta að málefnum íbúanna. Þau vinnubrögð geta ekki fengið aðra umsögn en vítaverð vanræksla. Tekið hefur verið á brýnustu hagsmuna- og öryggismálum íbúanna með fullkomnu sinnuleysi og framtaksleysi og endalausum innantómum loforðum sem flest, ef ekki öll, hafa lent upp í erminni.
Kjalnesingar hlunnfarnir
Sú var tíðin, 1998, að fyrrverandi borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hafði uppi fjálglega frasa um gagnkvæma hagsmuni, beggja sveitarfélaganna, Reykjavíkur og Kjalarness, af sameiningunni.
En nú er öldin önnur: R-listanum hefur ekki þótt neitt sjálfsagðara en að svíkja flest loforð gagnvart Kjalnesingum og brjóta á þeim samninga, m.a. þann samning sem sveitarfélögin gerðu með sér við sameininguna. Kjalnesingar hafa svo sannarlega fengið að reyna að þeir eru olnbogabarn borgarinnar. Nú er svo komið að margir málsmetandi Kjalnesingar, telja sig og sveitunga sína hafa heldur betur verið hlunnfarna, og eru farnir að efast um réttmæti sameiningarinnar.
Öryggismál í ólestri
Kjalarnesið er beinlínis lífshættulegt íbúasvæði, börnum, unglingum og fullorðnum. Það er oft stórhættulegt ökumönnum og farþegum þeirra að hægja mikið á sér á Vesturlandsveginum og beygja síðan inn í Grundarhverfið vegna ógnarhraða og sívaxandi umferðar, sífellt stærri og fleiri vöruflutningabíla, að ekki sé nú talað um aðra og fáfarnari afleggjara Vesturlandsvegar á Kjalarnesi.
Sjálfstæðismenn í umhverfisráði lögðu fram tillögur um úrbætur í umferðaröryggismálum á Kjalarnesi 22. febrúar sl., en R-listinn frestaði tillögunni. Það er dæmigerð afstaða þeirra þegar málefni Kjalarness eru annars vegar.
Börn og unglingar á Kjalarnesi hafa reynt eftir megni að leika knattspyrnu í moldarsvaði meðfram Vesturlandsveginum þar sem umferðarþunginn er gífurlegur. Þar er ekki einu sinni rolluheld girðing og svo stutt í þjóðveginn að boltinn fer oft út á og yfir veginn. Börnin og unglingarnir hafa þolinmóð beðið eftir, einum einasta, þokkalegum sparkvelli frá því slíkum velli var lofað fyrir tveimur árum. En þar er líklega til of mikils mælst, enda bólar ekkert á vellinum.
Margsvikin loforð
Meira en helmingur vegakerfisins á Kjalarnesinu er malarvegir eins og tíðkuðust í Reykjavík áður en Geir Hallgrímsson, þáverandi borgarstjóri, útrýmdi slíkum götum og vegum á sjöunda áratug síðustu aldar. Nýbyggingin við grunnskóla hverfisins, Klébergsskóla, heldur ekki vatni og hefur ekki gert það frá því hún var tekin í notkun.
Fjögur ár, samfleytt, frestaðist skólahald við Klébergsskóla vegna seinkunar á framkvæmdum við skólann. Skólalóð Klébergsskóla er algjörlega ófrágengin, þrátt fyrir margítrekuð loforð um frágang hennar. Leikskólinn sem upphaflega og réttilega átti að verða þriggja deilda, var minnkaður niður í tveggja deilda skóla með þeim afleiðingum að hann er nú þegar orðinn of lítill. Aðkoman að honum er kennslubókardæmi í slysagildrum fyrir börn og fullorðna.
Enn hefur ekki verið lokið við gangstéttagerð og ýmsan annan frágang við götur Grundarhverfis þó nú hafi í mörg ár tíðkast í Reykjavík og öðrum bæjarfélögum að ganga frá slíkum framkvæmdaatriðum áður en íbúar flytja í hið nýja hverfi. Og svona gæti ég lengi haldið áfram. Allt er á sömu bókina lært.
Korter fyrir kosningar
Ekkert af þessu er þó aðalatriðið hér: Aðalatriðið er sjálfumgleði og hroki þeirra fulltrúa R-listans sem fimmtudaginn 23. mars sl. létu loks draga sig upp á Kjalarnes á kosningafund, korter fyrir kosningar, hlusta þar á umkvartanir íbúanna, - en tóku síðan til máls og töluðu fjálglega um sínar fallegu framtíðarhugsjónir, en létu umkvartanirnar íbúanna sem vind um eyru þjóta.
Slík framkoma sýnir fádæma valdhroka og er því frágangssök.
Það er athyglisvert, að mörg - jafnvel flest - þeirra úrlausnarefna sem hér koma til álita, kosta borgina óverulegar fjárhæðir miðað við öryggishagsmuni Kjalnesinga. Spurningin snýst því ekki um fjármuni, heldur áhuga á velferð borgaranna og að staðið sé við gerða samninga.
Við sjálfstæðismenn teljum það sjálfsagða skyldu okkar að standa við samninga og gefin loforð. Við viljum láta verkin tala, teljum það skyldu okkar að hlusta á íbúa borgarinnar, forgangsraða verkefnum og framkvæma án tafar það sem er aðkallandi.og varðar öryggi borgarbúa. Við munum því standa við þau fyrirheit á Kjalarnesinu sem R-listinn hefur svikið.
Greinin birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. mars 2006.






