Form
Kjalarnes.is

Kirkjur á Kjalarnesi


Aðventuhátíð Brautarholtssóknar


2008-12-05 09:01:29
Aðventuhátíð Brautarholtssóknar verður í Fólkvangi nk. sunnudag þann 7. desember kl 17:00


319

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Frettamyndir/fjara.jpg|left||0|Anna Margrét Sigurðardóttir segir túnin á Saurbæ hafa látið undan síga fyrir ágangi sjávar undanfarin ár. MYND/Garðar |bottom|| Frettamyndir/fjara2.jpg|right||0|Ljósleiðari í lausu lofti Viðkvæmur ljósleiðari Símans er nú berskjaldaður í fjörukambinum. Fréttablaðið/Garðar |bottom|left|300

Sjávarrof ógnar kirkjugarði


2008-08-19 08:24:20

{mosimage}„Það fer að hrynja úr bökkunum og þá styttist í kirkjugarðinn. Það getur orðið á komandi vetri ef illa fer," segir Anna Margrét Sigurðardóttir í Saurbæ í Hvalfirði.

Anna hefur áhyggjur af vaxandi landrofi vegna ágangs sjávar.
Saurbær er við mynni sunnanverðs Hvalfjarðar. Sigursteinn Jósefsson, eigandi jarðarinnar Hjarðarness þar austan við, hefur sagt í Fréttablaðinu að hann telji orsökina fyrir landrofi á svæðinu vera malarvinnslu fyrirtækisins Björgunar sem hófst þar á sjávarbotni eftir að sæstrengur var fluttur við byggingu Hvalfjarðarganga. Anna tekur undir þetta.



281

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Sumardagar kirkjunnar í Fólkvangi


2008-07-30 12:33:12

Sumardagar Brautarholtssóknar

vikuna 5. – 8. ágúst 2008

Brautarholtssókn býður upp á hina árlegu sumardaga í Fólkvangi dagana 5.-8. ágúst nk. frá kl. 9:00-12:00. 

Sumardagar eru leikjanámskeið sniðið fyrir börn 6 til 9 ára. Farið verður í leiki, sungið saman, fræðst um trúna, lífið og tilveruna í leik og starfi. Sumardagar eru í boði Brautarholtssóknar og þátttakendum að kostnaðarlausu. 

Nauðsynlegt er að koma með útiföt því farið verður í gönguferðir, leiki og fleira utandyra. Brautarholtssókn býður upp á drykki í nestistímanum en börnin koma sjálf með nesti. 

Umsjón með sumardögunum hefur Ingi Þór Emilsson æskulýðsfulltrúi Ástjarnarsóknar og með honum verður valið lið æskulýðsleiðtoga.  Nánari upplýsingar um Sumardagana má fá hjá Inga Þór í síma 861-4099



280

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

150 ára afmæli Brautarholtskirkju


2007-12-14 00:00:34
  Sunnudaginn 9. desember var í Fólkvangi haldið upp á 150 ára afmæli Brautarholtskirkju á Kjalarnesi. Í því tilefni var flutt vönduð menningardagskrá þar sem Skólahljómsveit Mosfellsbæjar tók á móti gestum með ljúfum tónum. Eftir helgistund í umsjón sr. Gunnars Kristjánssonar og þátttöku barnakórs Klébergsskóla kom Karlakór Kjalnesinga fram og flutti nokkra sálma sr. Matthíasar Jochumsonar. Þá var erindi Jóns Þ. Þórs um sögu kirkjunnar í flutningi Ásthildur Skjaldardóttir en hún er afkomandi kirkjusmiðs Brautarholtskirkju. Ólafur F. Magnússon forseti borgarstjórnar flutti ávarp með góðum kveðjum og fyrirheitum um stuðning. Fyrir hönd afkomenda Jóns og Auðar í Brautarholti kom Björn Jónsson kirkjuhaldari og afhenti kirkjunni veglega kertastjaka, Guðbrandur Hannesson formaður Reynivallarsóknar gaf hina nýútkomnu biblíu og Theódór Magnússon eða Teddi í Arnarholti afhenti sókninni Guðbrandsbiblíu sem er ljósprentuð útgáfa frá 1956. Því næst fluttu þeir félagar Egill Ólafsson og Jónas Þórir nokkur gullfalleg lög.  Þá var 8. bekkur Klébergsskóla með afar skemmtilegt verkefni undir leiðsögn Hrefnu Sigríðar um sögu kirkjunnar. Einnig var vegleg sögusýning sem Ólafur Engilbertsson hjá Sögumiðlun hafði unnið fyrir sóknarnefndina í tilefni afmælisins. Að lokum fluttu félagar úr lúðrasveitinni nokkur jólalög á meðan gestur nutu myndarlegra kaffiveitingar sem voru í umsjón nokkurra foreldra elstu bekkja Klébergsskóla. Hátíðin var mjög fjölmenn og þótti afskaplega velheppnuð.  

237

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

150 ára afmæli Brautarholtskirkju


2007-12-13 23:51:18
Sunnudaginn 9. desember var í Fólkvangi haldið upp á 150 ára afmæli Brautarholtskirkju á Kjalarnesi. Í því tilefni var flutt vönduð menningardagskrá þar sem Skólahljómsveit Mosfellsbæjar tók á móti gestum með ljúfum tónum. Eftir helgistund í umsjón sr. Gunnars Kristjánssonar og þátttöku barnakórs Klébergsskóla kom Karlakór Kjalnesinga fram og flutti nokkra sálma sr. Matthíasar Jochumsonar.


236

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

VIÐBURÐIR