Aðalsafnaðarfundur Brautarholtssóknar verður haldinn í Fólkvangi fimmtudaginn 31. maí kl. 17:30.
678
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Aðalsafnaðarfundur Brautarholtssóknar
2012-05-26 13:33:58
Aðalsafnaðarfundur Brautarholtssóknar verður haldinn í Fólkvangi fimmtudaginn 31. maí kl. 17:30.
Dagskrá fundarins:
Starfsskýrsla
Reikningar
Kosningar
Önnur mál
Á vegum sóknarnefndar fer fram afskaplega fjölbreytt og gefandi starf. Sem dæmi er að alla fimmtudaga kemur hópurinn 60+ saman og þiggur kaffi í Fólkvangi um leið og öll heimsins mál eru rædd. Þá er þróttmikið starf Prjónaklúbbsins Esju undir verndarvæng sóknarinnar.
Framundan eru spennandi verkefni í frekari uppbyggingu safnaðarstarfsins eins og í barnastarfi, uppbyggingu kirkjukórs, byggingu aðstöðuhúss við Brautarholtskirkju og minnisvarði um fyrstu kirkju á Íslandi.
Allir eru hjartanlega velkomnir og hvetjum við fólk til að kynna sér og taka þátt í starfinu með því að koma á aðalfundinn í Fólkvangi fimmtudaginn 31. maí kl 17:30.
Sóknarnefnd Brautarholtssóknar.
Framhaldsnámskeið í þæfingu
2012-03-15 14:08:35
Í framhaldi af velheppnuðu þæfingarnámskeiði sem haldið var laugardaginn 25. febrúar verður haldið framhaldsnámskeið í Fólkvangi laugardaginn 17. mars.
659
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Framhaldsnámskeið í þæfingu
2012-03-15 14:08:35
Í framhaldi af velheppnuðu þæfingarnámskeiði sem haldið var laugardaginn 25. febrúar verður haldið framhaldsnámskeið í Fólkvangi laugardaginn 17. mars.
Fyrsta þæfingarnámskeiðið var haldið í Klébergsskóla laugardaginn 25. febrúar, þátttakendum að kostnaðarlausu utan efniskostnaðar.
Leiðbeinandi var Guðrún Þorláksdóttir hjúkrunarfræðingur og handverksverkskona, sjá www.Ullarljós.is. Þátttaka var mjög góð. Guðrún útskýrði muninn á íslenskri ull og Merino ull, hvað gerist við þæfingu og hvernig má þæfa ull og önnur efni saman t.d. silki. Hún kenndi grunnaðferðir við hola hluti en það er tækni sem notuð er við þæfa skó, töskur, stjaka, ljós, seríur o.s.frv. Mikið var sullað, hnoðað, rúllað, slegið og hlegið.
Í hléi var boðið upp á súpu og heimabakaðar skonsur með áleggi og veitti ekki af eftir alla líkamsræktina sem að sögn leiðbeinanda þjálfar bingó vöðvana. Allir þáttakendur náðu að klára í það minnsta einn hlut á námskeiðinu og vildu endilega læra meira. Brautarholtssöfnuður býður því upp á framhaldsnámskeið í þæfingu í næsta mánuði undir leiðsögn Guðrúnar og verður námskeiðið auglýst nánar síðar.Hámark þátttakenda er tíu manns og þurfa þeir að hafa sótt grunnnámskeið í þæfingu.
Kær kveðja, f.h. Brautarholtssafnaðar, Prjóna- og handverkshópurinn Esja.
Þæfingarnámskeið
2012-02-21 21:22:18
Á vegum Brautarholtssafnaðar er boðið upp á þæfingarnámskeið í Klébergsskóla laugardaginn 25. febrúar.
654
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Þæfingarnámskeið
2012-02-21 21:22:18
Á vegum Brautarholtssafnaðar er boðið upp á þæfingarnámskeið í Klébergsskóla laugardaginn 25. febrúar.
Miðað er við 10 manna hópa og leitast við að gefa öllum áhugasömum Kjalnesingum kost á að taka þátt í þessu námskeiði. Fyllist námskeiðið á laugardaginn verður það endurtekið síðar. Í þetta verkefni fékkst kr. 60þús styrkur frá hverfisráði Kjalarness. Námskeiðið er frítt fyrir utan efniskostnað.
Sjá nánar handverksnámskeið. Mikilvægt er að skrá sig sem fyrst hjá: Svölu Sigríði Thomsen: s:862 9162 svalasth@simnet.is Írisi Fjólu Bjarnadóttur: Irisfjola@simnet.is Guðrúnu Þorláksdóttur / Ullarljós.is: gudrunthorlaks@gmail.com
Aðalsafnaðarfundur Brautarholtssóknar
2011-05-24 23:58:01
Aðalfundur Brautarholtssóknar hefur verið boðaður fimmtudaginn 26. maí. Brautarholtskirkja á Kjalarnesi má teljast afkomandi fyrstu kirkju á Íslandi, þeirrar kirkju sem suðureyski landnámsmaðurinn Örlykur Hrappsson reisti á Esjubergi skömmu fyrir árið 900 og frá segir í Landnámu og víðar.
611
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Aðalsafnaðarfundur Brautarholtssóknar
2011-05-24 23:58:01
Aðalfundur Brautarholtssóknar hefur verið boðaður fimmtudaginn 26. maí. Brautarholtskirkja á Kjalarnesi má teljast afkomandi fyrstu kirkju á Íslandi, þeirrar kirkju sem suðureyski landnámsmaðurinn Örlykur Hrappsson reisti á Esjubergi skömmu fyrir árið 900 og frá segir í Landnámu og víðar.
Kirkjan, sem þar er nú, var reist árið 1857 af Eyjólfi Þorvarðarsyni frá Bakka á Kjalarnesi. Áratug eftir vígslu kirkjunnar kom þjóðskáldið séra Matthías Jochumsson til þjónustu í kirkjunni (1867-73).
Á vegum Brautarholtssóknar fer fram afskaplega fjölbreytt og gefandi starf. Sem dæmi er að alla fimmtudaga kemur hópurinn 60+ saman og þiggur kaffi í Fólkvangi um leið og öll heimsins mál eru rædd. Þá er þróttmikið starf Prjónaklúbbsins Esju undir verndarvæng sóknarinnar.
Framundan eru spennandi verkefni í frekari uppbyggingu safnaðarstarfsins eins og í barnastarfi, uppbyggingu kirkjukórs, byggingu aðstöðuhúss við Brautarholtskirkju og minnisvarði um fyrstu kirkju á Íslandi.
Allir eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að kynna sér og taka þátt í starfinu með því að koma á aðalfundinn í Fólkvangi kl 20:00 fimmtudaginn 26. maí.
Menningardagur í Brautarholtssókn
2010-10-27 20:35:24
Á siðbótardaginn sunnudaginn 31. október verður hátíð í Kjalarnesprófastsdæmi þegar menningardagurinn "Opnar kirkjur" verður haldinn hátíðlegur í öllum kirkjum prófastsdæmisins. Í Brautarholtskirkjuverður um 40 mínútna dagskrá sem hefst kl 14:00.
526
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Menningardagur í Brautarholtssókn
2010-10-27 20:35:24
Á siðbótardaginn sunnudaginn 31. október verður hátíð í Kjalarnesprófastsdæmi þegar menningardagurinn "Opnar kirkjur" verður haldinn hátíðlegur í öllum kirkjum prófastsdæmisins. Í Brautarholtskirkjuverður um 40 mínútna dagskrá sem hefst kl 14:00.
Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir þjóðfræðingur flytur erindi um þjóðlegan fróðleik tengdan Kjalarnesi og Brynhildur Ásgeirsdóttir spilar á þverflautu. Judith Þorbergsson sér um undirleik á orgel.
Í Saurbæjarkirkju hefst dagskrá kl 15:00. Arndís Guðmundsdóttir kirkjuvörður segir frá nýjum áherslum í sjálfboðastarfi. Brynhildur Ásgeirsdóttir spilar á þverflautu og Judith Þorbergsson sér um undirleik á orgel.
Þá hefst kl 17:00 áhugaverð dagskrá í Reynivallakirkju um Írafellsmóra og Kjósverja sem tengjast sögu hans. Nánari upplýsingar um menningardagskrána í öllum kirkjum prófastsdæmisins er að finna hér.