2004-11-29 00:00:00
Verður verður næstu helgar.
Hefur þig dreymt um að fara með fjölskyldu þinni í skógarhögg þar sem þið veljið ykkar eigið jólatré og höggvið það sjálf?
Einstaklingum sem og starfsmannahópum gefst nú, eins og undanfarin ár, frábært tækifæri til að koma í desember að Fossá í Kjós og ná sér í jólatré.
Gott væri að hópar tilkynni um komu sína.
Helgarnar 3. og 4. desember, 10. og 11. desember og 17. og 18. desember verður opið þar fyrir almenning, frá kl. 11:00 til 15:00. Vilji hópar koma á öðrum tíma þá er hægt að panta það sérstaklega. Allur ágóði rennur til skógræktar og uppbyggingar útivistarsvæðis á jörðinni. Skógræktarfélögin í Kópavogi, Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós eiga þetta svæði og hafa plantað í það í um 30 ár.
Þið getið komið með nesti með ykkur og sest inn í húsið að Fossá, sem er gamalt og lélegt, og borðað nestið þar svo lengi sem húsrúm leyfir. Ef veðrið er gott er líka hægt að setjast niður með nestið í einhverju skógarrjóðrinu . Einnig geta hópar fengið keypt kaffi í Félagsgarði af Kvenfélagi Kjósarhrepps, sjá nánar á næstu bls..
Við viljum beina því til þeirra sem höggva sér tré að þeir hlífi skógarjöðrunum og höggvi trén sem næst rótinni (skilji ekkieftir hluta af trjánum) þó þeir borgi fyrir og nýti aðeins þá lengd sem hentar.
Verð á jólatrjám 2005
Greni og Fura
≤ 1 m 2.000
≤ 1,5 m 2.500
≤ 2 m 3.000
≤ 2,5 m 3.500
≤ 3 m 4.000
≤ 3,5 m 4.500
≤ 4 m 5.000
Með því að velja íslenskt jólatré styrkir þú skógræktarstarfið í landinu. Fyrir hvert selt jólatré geta skógræktarfélögin gróðursett 30 - 40 ný tré.
Jólatré stendur best ef það er geymt á köldum og rökum stað fram að jólum (jafnvel að standa í vatni). Við uppsetningu er rétt að saga þunna sneið (5 – 10 cm) neðan af trénu og láta það standa samfellt í vatni yfir hátíðarnar. Mikilvægt er að það þorni aldrei!
Íslensk jólatré eru barrheldnari en innflutt vegna þess að þau eru höggvin miklu síðar en þau innfluttu og ef þau þorna aldrei byrja þau að vaxa um þrettándann.
Í summar hefur aðgengi að svæðinu verið bætt verulega með nýjum vegi og fjölgun bílastæða.
Nánari upplýsingar og séróskir s.s. aðra daga veita:
Magnús sími: 554-2442, gsm 864-2427 og maggunn@ismennt.is
Pétur Karl sími: 554-3452 á kvöldin, gsm 869-3276 og pks@vao.is
Sigríður sími: 554-5299 á kvöldin, gsm 899-8718 og sigjo@mmedia.is
Guðni sími: 6955116 melar@kjalarnes.is
Heimasíður: http://www.kjalarnes.is/fossa.htm
http://www.skogkop.net/
Með jólatrjáakveðju,
Fossá, skógræktarfélag.